Fálkinn


Fálkinn - 04.10.1961, Blaðsíða 15

Fálkinn - 04.10.1961, Blaðsíða 15
ánægjulega um leið og hann las bréfið. Loks var allt undirbúið og hann gat farið með demantana til Amsterdam. Hann ákvað þegar að fara þangað í vikulokin. Hann las hin bréfin sem lágu á skrifborðinu, en opnaði síðan pen- ingaskápinn. Um leið og hurðin opnað- ist, hörfaði hann undan og skelfingar- óp var komið fram á varirnar á honum. Fljótt á litið virtist ekki hafa verið hreyft við neinu í skápnum en í efstu hillunni lá nafnspjald, sem blasti við honum. Hann skalf, þegar hann tók það og las: „Beztu kveðjur „Snillingsins" færa yður heim sanninn um það, að heimsk- ingjar fara alltaf halloka fyrir snill- ingum!“ Svitinn bogaði af enninu á Salomon og hann titraði í hnjáliðunum. Hann dró fram skúffuna, þar sem hann hafði geymt demantana. Hann vissi það, áð- ur en hann leit í hana, að hún mundi vera tóm. Jú, demantarnir voru horfnir, en ekki hafði verið hreyft við neinu öðru í skápnutn. í svipinn gat hann alls ekki gert sér grein fyrir, hvað hafði gerzt. En þegar sannleikurinn varð honum ljós, var honum öllum lokið. Hann vissi, að dem- antarnir höfðu verið þarna í gærkvöldi. Og jafnviss var hann um hitt: Að hann hafði læst skápnum. Samt voru dem- antarnir horfnir. Hann reyndi að gera sér grein fyrir þessu. Smám saman komst hann að fastri niðurstöðu um þrennt í þessu máli: Að þjófurinn hlaut að hafa vitað, að Cambell-demantarnir höfðu verið í vörzlum Salomons. I öðru lagi, að demantarnir voru óvátryggðir og að tapið var hans og aðeins hans. í þriðja lagi gat hann ekki tilkynnt lög- reglunni þjófnaðinn. Aldrei á ævi sinni hafði hann lent í öðru eins. Hann gat hreinlega ekkert gert í málinu. Allt í einu varð honum ljóst, að hann var í mikilli hættu, Einhver hlaut að vita um að hann var þjófsnautur, og sá hinn sami hafði hann á sínu valdi og mundi eflaust neyta aðstöðu sinnar til þess að hafa fé út úr honum. En hið dularfyllsta var, að ekki skyldi hreyft við öllum þeim öðrum fjármun- um, sem voru í skápnum. Salomon gafst upp við að hugsa um málið. Hann læsti peningaskápnum og fór út. Hann leigði sér bíl og gaf bílstjóranum upp áfanga- staðinn. Meðan bíllinn rann um strætin á fleygiferð, hallaði Salomon sér aftur í sætinu í djúpum hugleiðingum. Loks er bíllinn staðnæmdist hafði hann ákveðið, hvað gera skyldi í málinu. Hann sté út, greiddi bílstjóranum og gekk inn þrönga götu. Húsin voru skít- ug og hrörleg. Hann drap á sérstakan hátt á einar dyrnar. Hurðinni var lokið upp og maðurinn, sem hafði selt honum demantana stóð fyrir framan hann. Þetta var maðurinn, sem vissi hver hafði stolið demöntunum frá Cambell lávarði. Hvorugur mælti orð frá vör- um fyrr en þeir höfðu aflæst hurðinni. Frh. á bls. 32 bókstafina, er að bora í gegnum sex þumlunga þykkt stál. — Þetta er amerísk gerð, er það ekki? — Jú, þetta er alnýjasta gerð, sem til er af peningaskápum. — Persónulega hef ég enga trú á peningaskápum, herra Salomon. Ef þér hefðuð séð það, sem ég hef séð, væruð þér ekki öruggur heldur. En nú hef ég lokið erindi mínu. Hann stóð á fætur og ætlaði að fara, en Salomon líkaði ekki vantraust hans á skápnum. — Hafið þér nokkurn tíma skoðað þessa nýju peningaskápa? spurði hann. Það má vera að ummæli yðar eigi við um gömlu skápana. En lofið mér að sýna yður þennan nánar. Fulltrúinn tók mjög vel eftir, meðan Salomon stillti lásinn og að vörmu spori var hurðin opin. — Jú, viðurkenndi hann. Það virðist vera sérstaklega fullkominn útbúnaður á þessum skáp. — Fullkominn! át Salomon eftir. Það er einmitt orðið. Ég er ekki vitund smeykur, þótt „Snillingurinn" sé kom- inn í bæinn. — Skápurinn virðist vera mjög ör- uggur, sagði fulltrúinn. Ég verð nú að viðurkenna það. Hann fylgdist mjög vel með hreyfing- um Salomons, þegar hann var að læsa skápnum aftur. — Mér þykir leitt að hafa ónáðað yður, herra Salomon, hélt hann áfram. En við töldum sem sagt réttast að að- vara yður. En nú verð ég að játa, að þér eruð albrynjaður gegn hvers konar innbrotum. Ég vildi óska að hinir gim- steinasalarnir væru eins forsjálir og þér. Þá væru menn eins og „Snillingurinn“ atvinnulausir. — Mér var sönn ánægja að kynnast yður, herra fulltrúi, sag'ði Salomon harðánægður með hólið. Hann hneigði sig eins djúpt og ístran leyfði. Hann brosti þegar hann lokaði hurð- inni og tautaði: — Samvaldir blábjánar. Það eru réttu orðin yfir þessa lögreglumenn. ★ Daginn áður en brúðkaup Cambells skyldi fara fram, ók Salomon í ljóm- andi skapi á skrifstofuna sína — í spán- nýjum bíl. Bílstjórinn bar hendina upp að húfu sinni um leið og höfðinginn sté út. Hið sama gerði dyravörðurinn, sem hélt hurðinni opinni fyrir hann, og stoltur og virðulegur gekk Salomon inn í skrifstofu sína Hann leit á bréfin, sem lágu á borð- inu og opnaði eitt þeirra, sem var með hollenzku frímerki á. Hann brosti FALKINN 15

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.