Fálkinn - 04.10.1961, Blaðsíða 20
VER6LAUNAGETRAUN
Hér birtist fyrsti híuti nýrrar og glæsilegrar verðlaunagetraunar
sem verður í sex blöðum. Hverju sinni eru birtar tvær myndir, sem
í fljótu bragði sýnast eins, en á NEÐRI MYNDINA VANTAR FIMM
HLUTI. Skrifið j>á á meðfylgjandi seðil og geymið seðlana unz
keppninni lýkur. Verðlaunin eru glæsileg Practika IV myndavél
að verðmæti 5000 krénur.
MEÐ HAUSTINU tekur ró að færast yfir líf manna
eftir ferðalög og annan þeysing sumarsins. Og þá er sá
tími genginn í garð, sem menn gefa sér meiri tíma til
dægradvala og annars dundurs.
FÁLKINN hleypir nú af stokkunum nýrri getraun og
að þessu sinni er hún glæsilegri en nokkru sinni fyrr.
Tilhögun keppninnar verður að þessu sinni sú, að í sex
blöðum í röð eru birtar hverju sinni tvær myndir. Mynd-
irnar virðast í fljótu bragði nákvæmlega eins, en þegar
betur er að gáð, kemur í ljós, að ljósmyndarinn hefur
sér til gamans tekið út af annarri FIMM HLUTI. —
Verkefnið. sem lesendur eiga að leysa af hendi, er að
finna þessa fimm hluti og skrifa þá upp á meðfylgjandi
seðil. Seðilinn á hver þátttakandi að geyma unz aliir
sex hlutar getraunarinnar hafa birzt. þá á hann að senda
alla seðlana í lokuðu umslagi til FÁLKANS, pósthólfi
1411 og auðkenna umslagið með: GETRAUN.
Verðlaunin eru spáný og glæsileg Practika IV mynda-
vél frá Hans Petersen, Bankastræti 3. Verðmæti mynda-
vélarinnar er um 5000.00 krónur, svo að hér er vissu-
lega til einhvers að vinna.
Á NEÐRI MYNDINA VANTAR:
1.
Z.
3.
4.
5.
NAFN □□ HEIMILI
SENDANDA:
FÁLKINN
20