Fálkinn


Fálkinn - 04.10.1961, Qupperneq 18

Fálkinn - 04.10.1961, Qupperneq 18
SAKLEYSINGJAR í SUMARLEYFI — Ó, pabbi, stígðu ekki ofan á meyj- araugað, hrópaði Ragnheiður dóttir mín. En það var of seint. Meyjaraugað, þetta litla, skæra blóm, kramdist undir hæln- um á vaðstígvéli númer 44 í kýrhag- anum á Ytri-Ey einn sunnudag í sumar. — Það er til fullt af meyjaraugum, svaraði ég. — Ekki er það neitt betra fyrir þetta blóm, svaraði sú stutta, og við slíkum sannleika er ekkert svar. En hvað var ég annars að þvælast norður í landi, troðandi niður annarra manna blóm, þegar almennilegir menn voru á síld? Ég var að heimsækja Þor- grím, son minn, í kaupavinnuna, og ég var ekki einn á ferð, heldur tók ég með mér alla fjölskylduna. Einu sinni í sumar hitti ég kunningja minn og spurði hann, hvort þau hjónin ætluðu ekki eitthvað út úr bænum í sumarleyfinu. — Ef við getum komið af okkur krökkunum, svaraði maðurinn. En nú þurfa allir að koma af sér krökkum, svo að ég veit ekkert, hvort við förum. Þá gerðist það. Ég stökk upp á nef mér og hellti úr skálum reiði minnar yfir þennan auma mann, sem lét sér detta í hug að koma af sér börnunum, á meðan hann færi í sumarfrí með kon- unni sinni. Ég sagði honum, skýrt og skorinort, að ég myndi taka mín börn með í sumarfríið, enda væri sumarfrí án barnanna ekki nema svipur hjá sjón. Við þetta heit stóð ég. Tjaldi, vind- sængum, svefnpokum og hlífðarfötum var troðið niður í sjópoka, öll fjölskyld- an klædd í vinnubuxur, peysu og strig'a- skó, og klukkan hálf átta að morgni, í þungbúnu veðri, var haldið af stað með allt hafurtaskið niður á B. S. í. til þess að komast með áætlunarbíl norður á Blönduós. . — Ég vona bara, að þú hafir ekki gleymt að láta vaðstígvélin niður í sjó- pokann með tjaldinu, sagði Rúna og leit til lofts. — Mamma, gleymdust kannski gler- augun mín heima? hrópar Ragnheiður með grátstafinn í kverkunum. Hún er átta ára og skoðar fjöllin í gegnum gleraugu. En til allrar hamingju fyrir velferð fjölskyldunnar dró Rúna gleraugun upp úr pússi sínu, og þegar dóttir okkar hafði komið þeim fyrir á nefinu, var raunum okkar lokið í bili, af því að Guðjón Ingi, fjögurra ára og yngsti maðurinn í för- inni, hafði ekki enn þá tileinkað sér forsjálni og þekkti því ekki heldur áhyggjur. Á dauða mínum átti ég von en ekki því, að brosandi, ljóshærð og lagleg ung- mey tæki á móti okkur í dyrum Norður- leiðabílsins og byði okkur velkomin. En, sem ég er lifandi maður, þarna stóð hún. Og þessi ljómandi bílfreyja vísaði okkur til sætis og sýndi okkur, hvernig ætti að halla stólbökunum, ef við vild- * um sofna. Þegar allir voru seztir og bílfreyjan aftur komin á sinn stað frammi í, birt- ist bílstjórinn. Og það var enginn 1 „Bjössi á mjólkurbílnum“, heldur sið- fágaður samferðamaður, sem bauð al- þýðumanni góðan daginn á sama hátt og bankastjóri heilsar upp á síldar- spekúlant í góðæri. Síðan var lagt af stað.Ég hallaði stólnum mínumoglygndi augunum. En ekki hafði ég fyrr sett mig í stellingar en bílfreyjan laut niður að mér og spurði undur þýðum rómi, hvort ég vildi ekki teppi. Auðvitað vildi ég teppi. og teppinu fylgdi bros, sem ylj- aði mér um hjartaræturnar, jafnvel þó að allir hinir farþgarnir fengju sams konar bros. Við vorum komin upp á Kjalarnes og allt gekk vel — Hvalfjörður framundan. Bílfreyjan gekk aftur eftir og hlúði að þeim, sem höfðu hallað sér, og þegar ég leit yfir hópinn, tók ég eftir því, að allir mennirnir sváfu með nákvæmlega sams konar bros á vörunum. Ég er viss um, að þá dreymdi líka alla sama drauminn. En sú dýrð að vera að fara í sumarfrí, ekki fullur sjálfselsku og sérhlífni, held- ur með alla fjölskylduna og góða sam- vizku. Ég sveipaði mig í teppi bílfreyjunnar og fann, að yfir andlit mitt færðist bros. Oframfærin, hikandi konurödd byrjaði að syngja „Blessuð sértu, sveitin mín.“ Hún söng hálfri röddu, en það var eins og hún byðist til þess að auka styrkinn við minnstu uppörvun. Röddin fjaraði smám saman út,. þegar enginn tók undir sönginn, og síðast heyrðust aðeins slit- ur, sem voru á hér um bil enginn söngur, heldur eins konar andmæli gegn skil- yrðislausri uppgjöf. í þann mund, sem mig var rétt að byrja að dreyma, heyrði ég einhver ó- kennileg kropphljóð fyrir aftan mig, og um leið þaut bílfreyjan aftur eftir bílnum með tvöfaldan bréfpoka í hend- inni. Mér datt auðvitað ekki í hug að snúa mér við eða líta aftur, — kannski var 18 FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.