Fálkinn - 16.05.1962, Qupperneq 7
vona svo aS heppnin verði
með okkur hjónunum og ég
fái eitthvað að lesa meðan
frúin er í greiðslunni.
Kær kveðja.
K.
MÞetta era
„PARNALL" heimilistækin
Fegurð og foreldrar.
Heiðruðu herrar. — Það hef-
ur mikið verið rætt um feg-
urðardísir þessa dagana og
þið hafið komið mikið þar við
sögu. Ég kann vel að meta
fegurð og yndisþokka kvenna,
en ekki get ég gert að því, að
þessar samkeppnir minna mig
alltaf á hrúta- og hrossasýn-
ingar. Hér á landi er að vísu
svokallað lýðræði og lýðveldi,
— ég veit satt að segja ekki
muninn á því, — og mönnum
er frjálst að gera það, sem
þeir vilja. Ég get því ekki lagt
til, að keppnin verði bönnuð,
heldur vil gera það að tillögu
minni, að stúlkurnar verði að
litlu vérðlaunaðar, en for-
eldrar þeirrra njóti heiðursins
fyrir að hafa smíðað svo fagr-
an grip.
Bubbi.
Svar:
Mjög athyglisverö tillaga, viö
vonum, aö Einar Jónsson gefi
henni gaum.
Enskuslettur.
Kæri Fálki. — Hvernig er
það, er enskan orðin eitthvert
yfirstéttarmál? Að minnsta
kosti hafa ýmsir mjög gaman
að því að láta sjá, að þeir
skilji ensku. Ég labbaði mig
niður Laugaveginn um dag-
inn og þá sá ég, að í glugga
á einni sjoppunni stóð: It’s
Dairy Queen time. Þessari
setningu var slegið uppáhálfa
rúðu, og satt að segja sló það
mig að sjá þetta. Það skyldi
þó aldrei fara svo að við ís-
lendingar lægjum eins hund-
flatir fyrir enskunni og Danir
og Þjóðverjar.
S.
Svar:
Já, viö tölcum undir fietta,
þaö er mjög leiöinlegt aö sjá
enskar auglýsingar í islenzkum
blööum og búöum. Auglýsendur
œttu aö sjá sóma sinn i því aö
auglýsa vörur sínar á eigin máli.
H j ónakrossgátur.
.... Nú sendi ég ykkur úr-
lausn á Hjónabandskrossgát-
unni; ég er nú ekki búinn að
ákveða bókina enn, en konan
er ákveðin að láta greiða sér,
ef heppnin verður með. Ég
Draumaráðningar.
Kæri Fálki. — Það er oft,
sem mig dreymir ýmislegt og
stundum bara merkilegt. En
ég á erfitt með að ráða draum-
ana og þess vegna langar mig
að spyrja þig Fálki minn góð-
ur, hvort þú getir ráðið ein-
hverja drauma, sem mig kann
að dreyma. Eg veit nefnilega
ekki um neinn annan, sem
getur ráðið drauma fyrir mig.
Stína.
Svar:
Blaöiö hefur því miöur engan
þátt um draumaráöningar, en
viö getum bent yöur á Skúla
Skúlason stjörnuspámann, hann
getur áreiöanlega ráöiö draum-
inn aö einhverju leyti og birt í
liinu vikublaöinu.
Útkoma blaðsins.
Okkur barst fyrir nokkru
þetta bréfkorn frá hinum
kunna liagyrðingi Hirti
Hjálmarssyni á Flateyri; —
Svo er hér það, sem mér kom
í hug, er ég las það í einu
dagblaðinu, að útkoma blaðs-
ins mundi falla niður vegna
þess, að blaðið hefði gerzt
nokkuð djarftækt við fegurð-
ardísirnar okkar.
Margt er, sem blað'akóngarnir
kynnast og reyna.
Þeir kankvísir gerast ef
nokkuð á snærið hljóp.
Og Fálkinn hefur fallið um
helgi eina.
með fegurðardísum — þó
nokkuð mörgum í hóp.
Við vísu þessa má bæta því,
að útkoma blaðsins féll ekki
niður, heldur seinkaði því
vegna páskanna. Þegar þetta
bréf birtist mun blaðið með
með fegurðardísunum þegar
komið í hendur almennings.
Dægurlagasöngur.
Kæri Fálki. — Hvað þarf
ég til þess að geta orðið dæg-
urlagasöngkona? Mig langar
svo skelfing til þess að geta
orðið það, en ég bara veit ekki
hvernig ég á að vera.
Dísa.
Svar:
ÞaÖ þarf aö liafa lag.
| PARNALL \
©
washer
Fjölvirka þvottavélin —
þvœr — skolar og þeytivindur
Geymir í sér sápuvatnið ef óskað er.
Fyrirferðarlítil og útlitsfalleg.
Hentug til innbyggingar.
Fljótvirkasta,
vandvirkasta
og þar að auki
x ódýrasta
strauvélin.
SS AUTOHRY
Þurrkari með sjólívirkum
tímarofa og 3ja hita stilli.
Fyrirferðarlítill og útlitsfallegur.
Hentugur til innbyggingar.
vinsœla þvottavélin með
rafvindu, með eða án suðu
Dælir úr sér upp í vaskinn.
Geymsluhólf fyrir vinduna.
Hagkvæm verð og greiðsluskilmálar
Aðalumboð:
RAFTÆKJAVERZLUN ÍSLANDS H.F.
Skólavörðustíg 3, sími 17975/76.
Útsala í Reykjavík:
SMYRILL,
Laugavegi 170, sími 12260.
FÁLKINN 7