Fálkinn - 03.10.1962, Blaðsíða 33
HEKLA • AKUREYRI
IÐNAÐARDEILD SlS
SÖLUDEILD
SÍMI 11971,17080
NYLON STYRKf
NANKIN
BUXURNAR
NYTT AMERÍSKT EFNI
AMERÍSKA SNIÐIÐ
Hrútsmerkið (21. marz—20. apríl).
Margvísleg vandamál verða á vegi yðar í bessari
viku og" yður mun ekki takast. að leysa þau öll upp
á cigin spýtur. Dragið ekki of lengi að leita aðstoðar
annarra. Þér þurfið engan veginn að skammast yðar
fyrir það.
Nautsmerkið (21. apríl—21. maí).
Það er uggur og kvíði í yður, en það er ástæðu-
laust að mestu. Utlitið virðist dökkt í svipinn, en
allt. er þetta á batavegi og úr hlutunum rætist ótrú-
lega vel, þegar allt kemur til alls. Það hleypur snurða
á bráðinn hjá elskendum, — en sættir takast í viku-
lokin.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júní).
Ýmsar hindranir verða á vegi yðar í bessari viku.
Það er kominn tími til að þér hristið af yður drung-
ann og lítið svolítið bjartari augum á tilveruna.
Þér hafið lent í margskonar erfiðleikum, en ekki svo
miklum, að þér þurfið að leggjast í þunglyndi þess
vegna.
Krabbamerkið (22. júní—22. júlí).
Þér eruð sérstaklega upplagður um þessar mundir
og mikill hugur í yður til stórræða. Gætið þess þó
vel að ofreyna yður ekki. Nokkrir af starfsfélögun-
um eru öfundssjúkir, bera yður á brýn smjaður gagn-
vart húsbændum. Takið bví með ró.
Ljónsmerkið (23. júlí—23. áqúst).
Hjá þeim, sem fæddir eru í ágúst. er útlitið sérlega
gott. Þér ættuð að reyna að nota hinn hagstæða byr
til þess að koma í gegn máli, sem þér hafið lengi
látið sitja á hakanum. Sýnið sérstaklega mikla um-
hyggju í einkalífi yðar, ef þér viljið komast hjá
óþægindum.
Jómfrúarmerkið (24. áqúst—23. september).
Allar líkur benda til þess að upphaf vikunnar verði
heldur skuggalegt, en horfur eru á, að það birti til,
þegar líður á. Þér ættuð ekki að taka að yður verk-
efni, sem þér hafið nær enga þekkingu á. Hafið
gætur á fjármálunum.
Q
Voparskálamerkið (24- september—22. nóvember).
Yikan verður einkar góð á öllum vígstöðvum. Það
bókstaflega gengur ekki á öðru en góðum fréttum
og glæsilegum tækifærum. Gætið yðar bara þegar verið
er að ræða mál, sem þér hafið rajög ákveðnar skoðanir
á, því það geur verið að einn af vinum yðar snúist
öndverður gegn yður.
Sporðdrekamerkið (24. október—22. nóvember).
Vikan verður góð og með afbrigðum skemmtileg.
Þér hittið margt af kunningjum og vinum og sömu-
leiðis komizt þér í kynni við mjög ánægjulegan hóp
manna. Þau útgjöld, sem þér verðið að láta af hendi,
virðast há í fyrst.u, en þeir peningar renta sig vel.. .
Bogamannsmerkið (23. nóvember—21. desember).
Þér fáið meðvind strax í byrjun vikunnar, en eins
og alltaf, þegar allt leikur í lyndi, þurfið þér að
hafa á öllu gát. Þér ættuð ekki að lofa meiru, en þér
eruð maður til þess að efna. Munið að sannleikurinn
er sagna beztur.
Steingeitarmerkið (22. desember—20. janúar).
Ekki er laust. við að þetta verði dálítið einkenni-
leg vika, og það væri skynsamlegast af yður að segja
sem minnst. — Fæst orð hafa minnsta ábyrgð. Þér
ættuð ennfremur að umgangast starfsfélaga yðar
með varúð, því að loftið er lævi blandið.
Vatnsberamerkið (21. janúar—19. febrúar).
Ef þér gætið að skapi yðar, mun yður takast að
leysa þau verkefni, sem þér hafið fengið af stakri
prýði. Þetta verður viðburðarík vika hjá ungu fólki,
einkum í ástamálunum. Nýr ástvinur kemur fram
á sjónarsviðið og mun varpa skugga á alla hina.
Fiskamerkið (20. febrúar—20. marz).
Vikan verður góð en krefst mikils af yður. Þér
verðið að taka á honum stóra yðar. Samt þannig,
að þér ofgerið ekki kröftum yðar og heilsu. Þér
ættuð að kosta kapps um, að rækja skyldur við
fjölskyldu yðar af trúmennsku og samvizkusemi.
FALKINN
33