Fálkinn - 06.02.1963, Blaðsíða 33
NÝTÍZKU
ELDHOSSETT
FALLEG'
VÖNDUÐ
ÖDÝR.
SENDUM UM
ALLT LAND
HNOTAN
HÚSGAGNAVERZLUN
Þórsgötu I — Sími 20820.
UNDIRFÖT ÚR NYLON OG PRJONASILKI
HUSGOGN
CERES, REYKJAVIK
Hrútsmerkið (21. marz—20. apríl).
Konur, sem fæddar eru undir þessu merki, mega
vænta gleðilegra tíðinda í byrjun vikunnar. Ef til
vill er um launahækkun að ræða og útJit fyrir að þér
sjáið yður fært að ferðast eitthvað, næst þegar þér
fáið orlof. Húsmæður geta vænzt meiri fría en áður.
Nautsmerkið (21. apríl—20. maí).
Þeir, sem fæddir eru undir þessu merki, eru að
eðli nokkuð örlátir. í þessari viku geta þeir búizt
við, aðverða fyrir óvæntum hagnaði á einhverju sviði.
Reynið að forðast allar deilur á heimili yðar og verið
sáttfús við nákomna ættingja.
Tvíburamerlcið (21. maí—21. júní).
Bréfaskriftir eru undir hagstæðum afstöðum þessa
viku og í vinnunni bíða yðar skemmtilegir dagar.
Ungt og ólofað fólk mun lenda í mjög rómantísku
ástarævintýri á laugardaginn, ef það lætur ekki skapið
fara með sig í gönur.
Q
Q
Krabbamerkið (22. júní—22. júlí).
Þér þurfið að rífa yður upp úr þessu sleni, sem
þér hafið verið í upp á síðkastið. Hvernig væri til
dæmis að tala við fólk um erfiðleika yðar. Það verð-
ur enginn minni maður af því að leita ráða hjá
öðrum. Útlit er fyrir að heilsan fari batnandi.
Ljónsmerkið (23. júlí—23. áffúst).
Látið ekki vini yðar hafa of mikil áhrif á gerðir
yðar. Reynið að vera sjálfstæðir í skoðunum og at-
höfnum. Annars er tíminn óhentugur til þess að
ráðast í stórframkvæmdir, einkum ferðalög til ann-
arra landa. Gætið að fjármálunum og hugsið svolítið
fram í tímann.
Jómfrúarmerkið (2U. áffúst—23. september).
Það eru einkum vandamál, sem steðja að á heimil-
inu, sem eru einkennandi fyrir þessa viku. Þó bendir
það meira en yður hafði nokkru sinni órað fyrir. En
bér ættuð að hafa í huga að oft veltir lítil þúfa
þungu hlassi, verið því varkár.
Voparskálamerkið (24. september—23. októbcr).
1 þessari viku munuð þér eiga mjög annríkt og
það meira en yður hafið nokkru sinni órað fyrir. En
í vikulok getið þér stært yður af glæsilegum árangri.
Samt er áríðandi að fylgja þessum sigri vel eftir og
láta ekkert tækifæri ónotað til að ná sett.u marki.
Sporðdrekamerkið (24. októbei—22. nóvember).
Þér hafið nýlega fengið vandasamt verk að vinna
og þér eruð í megnustu vandræðum með að leysa það
vel af hendi. Þess vegna ættuð þér að leita hjálpar
hjá þeim mönnum, sem reynslu hafa í þessum efnum.
Þá ætt.uð þér að geta leyst verkefnið með prýði.
Bof/amannsmerkið (23. nóvember—21. desember).
Það fólk, sem er rétt yfir tvítugt, mun að öllum
líkindum lenda í mörgum og skemmtilegum ævintýr-
um í þessari viku, ef til vill ástarævintýrum. En þér
skuluð ekki vona, að þessi ástarævintýri geti leitt
til hjónabands. Til þess eru lítil líkindi.
Steinffeitarmerkið (22. desember—20. janúar).
Það verður yðar hlutskipti þessa viku að ráðleggja
og leiðbeina öðrum. Þar er bezt að vera hreinskilinn
og draga ekkert undan. Ungir menn, sem eru að
barma sér yfir misheppnuðum ástarævjntýrum, ætt.u
skilyrðislaust að hætta öllu voli. Það er þeim fyrir
beztu.
Vatnsberamerkið (21. janúar—19. febrúar).
Horfurnar eru vægast sagt uggvænlegar á vinnu-
stað. Það ríður á því að þér starfið af kappi og sýnið
eins mikinn dugnað og yður er framast mögulegt. Þá
er engin ástæða til að óttast. Ekki skuluð þér vera
með ráðagjörðir un\, hvað gera skuli um helgina.
Fiskamerkið (20. febrúar—20. marz).
Þér ættuð að umgangast yðar nánustu með mikilli
varkárni í þessari viku. Gætið þess vel að reiðast ekki
yfir smámununum. Undir vikulokin þurfið þér að taka
mikilsverða ákvörðun og æt.tuð þér ekki að óttast
að koma þar til dyranna eins og þér eruð klæddur.
FÁLKINN 33