Fálkinn - 06.04.1964, Blaðsíða 4
Þetta er hin sautján
ára Sue Lyon sem
á sínum tíma lék
aðalhlutverk í kvik-
myndinni Lolitu á
móti James Mason þá
fimmtán ára gömul.
Sue hefur nýlega
gifst og sá hamingju-
sami heitir Hamton
Fencher og er einnig
kvikmyndaleikari
og er 25 ára gamall.
Um þesar mundir er
verið að hefja vinnu
við töku nýrrar
kvikmyndar þar
sem Elvis Presley
og Ann- Margret fara
með aðalhlutverkin.
Þessi mynd á að heita
Viva Las Vegas og
hún verður tekin að
mestu leyti í þessari
borg næturklúbba og
spilavíta. Bæði Elvis
og Ann hafa sagt
að þessi mynd muni
verða stórkostleg.
Nýjustu fréttir af
Birgitte Bardot hinni
tuttugu og níu ára
gömlu þokkagyðju (og
þó er þetta ekkert
sérlega nýtt) er að
hún leikur nú í
njósnamynd á móti
Anthony Perkins. Um
einkalíf B. B. er það
að segja að kunnings-
skapur hennar við
braziliska playboyinn
Bob Zaguri virðist
vera orðinn mjög
náinn. Ekki viljum við
spá um framtíð þessa
fyrirtækis en trúlega
verður það ekki
langvinnt.
ÝMISLEGT UM
LEIKARA
Kvikmyndastjörnur eru oft
vinsælt umræðuefni og sú
stjarna sem ekki er umrædd
á einn eða annan hátt má sann-
arlega fara að gæta sín. Frægð
hennar mundi fara minnkandi
unz svo væri komið að enginn
mundi lengur muna eftir henni
og þá eru dagar hennar sem
stjörnu taldir og hún verður
að snúa sér að öðrum störfum.
En sögurnar, sem ganga af
kvikmyndastjörnunum eru mis-
jafnar og margar þeirra eru
kannski ekki alveg sannleikan-
um samkvæmar. Það er talað
um slúðurblöð og slúður síður
og þar getur að lesa hinar
furðulegustu sögur af þessu
fræga fólki. Og það er fjöldi
manna, sem hefur lifibrauð
sitt af því að útdeila þessum
sögum. Stundum gefa stjörn-
urnar út yfirlýsingar þess efnis
að þessi eða hin saga sé ekki
sönn og enginn fótur sé fyrir
henni en slúðursíðumenn eru
ekki ginnkeyptir fyrir slíku,
láta það sem vind um eyrun
þjóta og finna bara upp nýja
sögu í staðinn.
Við skulum nú til gamans
athuga nokkrar af þeim sögum,
Curt Jiirgen.
Striptease í Hong Kong. j|
sem gengið hafa nýlega um
nokkrar þekktar stjörnur.
Þá er það fyrst sagan af
henni Corrine Calvet. Hún var
fyrir skömmu í Ástralíu. Á
veitingahúsi í Sydney varð hún
fyrir óhappi að ekki verði
meira sagt. Hún var að
dansa vangadans við einhvern
ónefndan herramann. Á þess-
um veitingastað háttar svo til
að dansgólfið er aðeins upp-
hækkað og ekki tókst betur til
en svo að skötuhjúin féllu í
dansinum fram af upphækkun-
inni og út á gólfið milli borð-
anna. Ekki sakaði þau en þetta
atvik var mikið rætt í borg-
inni fyrst á eftir.
Þá er það sagan af henni
Melinu Mercuri sem við minn-
umst úr myndunum Aldrei á
sunnudögum og Phadra. Fyrir
nokkru síðan var henni neitað
um aðgang að einu veitinga-
húsi í London vegna þess að
hún þótti of léttklædd. Sögðu
forráðamenn staðarins að
klæðnaður ieikkonunnar hefði
betur sómt henni á einhverri
baðströndinni heldur en í salar-
kynnum veitingahússins.
Hinn þýzki Curt Júrgen er
sagður hafa gaman af því að
hneyksla fólk með framkomu
sinni. Hvort sem þetta er satt
eða ekki þá tókst honum vel
Framh. á bls. 38.
Corrine Calvet.
Féll á dansgólfið í Sydney.
4
FALKINN