Fálkinn - 06.04.1964, Blaðsíða 35
STEIKT HJÚRTU
Steikt hjörtu.
3—4 hjörtu
Salt, pipar
Innan í:
8-10 útbleyttar sveskjur
1 epli í bitum
ÍVz msk. smjörlíki
3 dl vatn
% dl rjómi
í sósu:
1 msk. hveiti
1 dl rjómi
1 msk. sólberjasaft.
Hjörtun opnuð vel, þvegin úr köldu rennandi
vatni. Þerruð vel, salti og pipar stráð innan í.
Fyllingin sett í. Saumað fyrir hjörtun eða hnýtt
utan um þau með soðnum bómullarþræði. Smjör-
líkið brúnað í potti, hjörtun steikt, við ekki of
bráðan hita, á öllum hliðum. Sjóðandi vatni eða
kjötsoði hellt yfir hjörtun einnig rjómanum.
Hjörtun látin sjóða undir hlemm, þar til þau
eru meyr. Fer eftir stærð þeirra. Snúið hjörtunum
oft, bætið við meira soði ef þarf.
Hjörtun tekin upp úr, böndin leyst og hjörtun
skorin í sneiðar, sem raðað er fallega á fat. Skreytt
með tómötum og agúrkum, ef til er. Sósa búin
til úr soðinu, þykkt með dálitlu hveiti og rjóma.
gott er að bragðbæta hana með sólberjasaft eða
hlaupi.
HRÍS
GRJÚNA
RÚND
2% dl hrísgrjón
1 1 mjólk
Vi tsk. salt
1 tsk. vanilla
2 msk. sykur
1 msk. smjör
50 g möndlur
4 dl þeyttur rjómi
4 bl. matarlím
2—3 bananar
Appelsína
Vínber, súkkulaði.
Hrísgrjónin soðin með mjólkinni nál.
20 mínútur, á að vera sem þykkur
mjólkurgrautur. Salti, vanillu, sykri og
smjöri hrært saman við. Grauturinn
látinn kólna, þá er söxuðum möndl-
unum hrært saman við. Matarlímið lagt
í bleyti og brætt, hrært saman við ásamt
stífþeyttum rjómanum. Hellt í bleytt
og sykurstráð hringmót. Hvolft á fat,
skreytt með þeyttum rjóma, ávöxtum
og súkkulaðiplötum.
FALK.ÍNN
35