Fálkinn - 06.04.1964, Síða 32
Trompslagur hverfur.
Hér á eftir fer nokkuð skemmtilegt spil, sem ég ætla
að biðja ykkur að reyna að vinna, áður en þið lesið skýr-
ingarnar. Sögnin er sex spaðar hjá Suðri, doblaðir og re-
doblaðir. Suður opnaði á einum spaða — flestir myndu
opna á þremur eða fjórum — Vestur sagði tvö lauf, sem
Norður doblaði. Ekki var Suður ánægður með það og sagði
beint fjóra spaða — og enginn getur áfellzt Norður fyrir
að segja sex með sín miklu spil, og þegar Vestur doblaði
redoblaði Norður. Og nú skulum við líta á spilið.
A Á-6
V Á-D
♦ Á-K-9-2
* D-G-10-9-7
A
V
♦
*
K-4-3 A
G-9 V
8-7-6 ♦
Á-K-6-5-4 A
A D-G-10-9-8-7-5-2
V K-2
♦ 5-4-3
A Ekkert.
Enginn
10-8-7-6-5-4-3
D-G-10
8-3-2
Vcstur spilaði út laufakóng og til þess að hjálpa ykkur
aðeins skal þess getið, að fyrirsögnin — trompslagur hverf-
ur — gefur nokkra hugmynd um hvernig á að spila. En
reynið við spilið áður en þið lítið á lausnina.
Sagnhafi trompaði laufakónginn, spilaði litlum spaða og
fékk slaginn á sexið í blindum. Trompaði aftur lauf, spil-
aði hjarta og vann slaginn á drottningu. Trompaði lauf í
þriðja sinn. Enn fór blindur inn og nú á hjartaás og lauf
trompað í fjórða sinn. Tígli spilað og tekið á kóng og síðasta
laufið trompað. Því næst tók sagnhafi á tigulás og spilaði
tígli sem Austur vann með drottningu. Suður átti nú eftir
spaðadrottningu og gosa, Vestur spaðakóng og fjarka, og
Norður spaðaás og tígulníu.
Nú verður Austur að spila hjarta og þá hverfur hinn
„öruggi“ trompslagur Vesturs. Suður lætur spaðagosann og
Vestur er algerlega varnarlaus.
HVAÐ GERIST í NÆSTU VIKU?
Hrútsmerlcið (21. marz—20. avríl).
Þér skuluð fara sem gætilegast í allar íram-
kvæmdir í þessari viku því hætt er við að ekki
muni allt fara sem til er ætlast. Þess vegna ættuð
þár að láta stórframkvæmdir bíða.
Nautsmerlciö (21. apríl—21. maí).
Þér skuluð minnast þess að oft er heppilegra
að hafa gát á því sem er að gerast í kringum
sig. Þér verðið að gæta vel að öllu sem er að
gerast svo þér verðið ekki afskiptir.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní).
Þessi vika sem nú fer í hönd verður sérlega
róleg hvað tekur til heimilislifs yðar en hætt er
við að ekki verði það sama upp á teningnum hvað
vinnustað viðvikur. Farið gætilega.
Krabbamerkið (22. júní—22. júlí).
Það er hætt við að þér verðið fyrir ýmsum
vonbrigðum í þessari viku og við því er ekkert
að gera nema taka þeim með karlmennsku. Þér
ættuð að huga vel að fjármálunum.
Ljónsmerkið (23. júlí—23. ápúst).
Nú fer sumarið að koma og þess vegna ættuð
þér að gera ráðstafanir með sumarleyfið. Þér
ættuð að gera yður dagamun um helgina og vita
hvort það verður ekki til að létta skapið.
JómfrúarmerkiÖ (21/. áqúst—23. sept.).
Þessi vika verður mjög skemmtileg fyrir yður
einkum fyrri hlutinn. Þér ættuð því að notfæra
yður þessa hagstæðu tíma eins og þér getið Því
óvíst er hvenær sambærilegir tímar muni lcoma
aftur.
VoqarskálarmerkiÖ (21. sept.—23. okt.).
Það er seinni hluti þessarar viku sem verður
með ýmsu móti allerfiður fyrir yður. Þér ættuð
samt ekki að láta það á yður fá því bjartir tímar
eru framundan.
Sporödrekamerkiö (2j. okt.—22. nóv.).
Þessi vika verður mjög róleg fyrir yður og fátt
eitt mun gerast sem verður þess megnugt að vekja
yður af þægilegum blundi sinnuleysisins. Þó verð-
ur þriðiudagurinn nokkuð sérstæður.
BogmannsmerkiÖ (23. nóv—21. des.l.
Nú verðið þér að fara að öllu með gát þvl
annars getur farið illa fyrir yður. Minnist þess
að hin minnsta fljótfærni getur leitt yður í vand-
ræði sem erfitt verður að losna úr.
SteingeitarmerkiÖ (22. des.—20. janúar).
Ef þér hafið verið að bíða eftir rómantizku
timabili þá er það að renna upp þessa dagana.
Þér skuluð samt ekki flýta yður að neinu því
flas er ekki til fagnaðar og rétt er að hafa vaðið
fyrir neðan sig.
VatnsberamerkiÖ (21. janúar—18. febrúar).
Um þesar mundir verðið þér að leggja alla
áherzlu á að koma fjármálunum i lag því þau
þarfnast skjótrar og góðrar úrlausnar. Fimmtu-
dagur og föstudagur munu reynast yður vel.
Fiskamerkið (19. febriiar—20. marz>.
Þér ættuð að ferðast meira en þér gerið. Það
bætir skap yðar sem ekki hefur verið alltof gott
upp á síðkastið. Fyrri hluti þessarar viku mun
reynast yður að ýmsu leyti hagstæður.
©
32
FALKINN