Fálkinn - 22.02.1965, Blaðsíða 16
stafi af því, að hún hafi alltaf haft
meiri tekjur en eiginmennirnir.
■■ ■"
V
I hinum frœga skilnaðarbœ
Reno aka fráskildir um í bíl,
sem ber skilti málað stórum
stöfum: Húrra! Hamingjusam-
lega nýsldliní
Ameríka er land hinna marg-
giftu ... landið, þar sem
maður giftir sig vegna eins
töfrandi orðs og skilur vegna
einnar niðrandi setningar. í
skoðanakönnun, sem fram fór
nýlega vestra, var því slegið
föstu, að fólk í Ameríku eign-
aðist almennt fleiri maka en
fólk í fjölkvænislöndum.
Ef litið er í talnaskýrslur,
kemur í ljós, að um fjórtán
milljónir Ameríkumanna hafa
gengið í gegnum skilnað og
það má tala um skilnaðarmál-
in þar eins og hverja aðra stór-
iðju. Ég hef sjálf heimsótt
nokkur af þessum „skilnaðar-
iðjuverum" eins og Reno, Las
Vegas og hinar gömlu dönsku
Jómfrúreyjar. Á þessum stöð-
um er hægt að losna við mak-
anna fyrir fullt og allt eftir sex
vikna dvöl.
Af þessum þrem stöðum
er ég nefndi er Reno kunnast-
ur hvað snertir sögufrægð og
siðvenjur. Sú venja ríkir þar
t. d., að fráskildir aka um í
bíl sem ber skilti málað stór-
um stöfum: Húrra! Hamingju-
samlega nýskilin! Önnur venja
er að kasta giftingarhringnum
í fljótið, sem rennur í gegnum
Hið fræga par Liz og Burton.
Burton er fimmti eiginmaður
Liz.