Fálkinn - 22.02.1965, Síða 25
1 Jónas Jónsson frá Hriflu. Við hlið hans er
dóttursonur hans, Sigurður Steindórsson.
2 Og hér fagnar Vigdís Jónsdóttir Jóni Eyþórs'
syni.
3 Talið frá vinstri: Valdimar Örnólfsson (for-
söngvari); Vigdís Jónsdóttir; Eyþór Einars-
son, náttúrufræðingur; Ingibjörg Sigurðar-
dóttir, Ijósmyndari (ASIS) og María Sigurðar-
dóttir eiginkona Sigurjóns Rist.
4 Frá vinstri: Páll Jónsson, bókavörður; Þor-
leifur Guðmundsson; Jón Eyþórsson; Guðrún
Markúsdóttir eiginkona Magnúsar Björnsson-
ar er starfar hjá Héðni og Guðmundur Jónas-
son hinn kunni langferðabílstjóri. Allt er þetta
fólk þekkt af dugnaði og áhuga á jökla- og
fjallaferðum.
5 Sigurður Jóhannsson, vegamálastjóri; Páll
Jónsson og Jónas Magnússon, rafvirkjameist-
ari í Ljós og Hita. Hann hefur ferðazt mikið
og farið með nokkrum leiðöngrum á Vatna-
jökul.
6 Eiríkur Hjartarson, rafvirkjameistari og frú.
Þau hafa mikinn áhuga á starfi Jöklarann-
sóknafélagsins og mæta á flestum fundum
félagsins.
7 Hákon Bjarnason, skógræktarstjóri, ræðir við
Þóri Baldvinsson, arkitekt.
JÖKLAMANNALJÓÐ
Mórall í borginni aflaga er,
og ástin á landinu þverrandi fer.
„En engan á jöklunum hafa menn hitt,
sem hefur ei dásamað föðurland sitt.“
Viðlag:
Hollarí-ó, hollarí-ó,
hollari hopp-sa-sa, hollarí-ó.
Milljónir renna úr rikisins sjóð
því redda skal dreifbýli með vorri þjóð.
Og Grímsvatnahreppur á heimtingu á fé
því hvar ætli dreifbýlið vænlegra sé?
Grimsvatnaskálinn er glæsilegt hús
þar geta menn lifað í súsi og dús.
Þó er hv"er reisa, sem þangað er gerð
þekkt undir nafninu „rannsóknarferð".
Blásnauður kommi, sem eldrauður er
uppiitast stundum, er fátæktin þver,
en sólbað á jökli er lækning við því,
litinn sinn fær hann þar aftur á ný.
Fúll er hann Skarni, menn finna að því,
en fúlli er Skeiðará hlaupunum í.
Yfir því fljóti telst alls ekki synd
inni í flugvél að leysa sinn vind.
Ærin er raun fyrir bifur og búk
að brölta upp á torfæran Hvannadalshnúk.
Þó æða menn þangað og iðra ei par
og eru víst sjaldan eins „hátt uppi" og þar.
Skellum nú botni í skrykkjóttan brag
skáldið er bilað og andlaust í dag.
En komist það aftur á Grimsvatnagrund
getur svo farið að hýrni þess lund.
S. Þ.