Verkalýðsblaðið - 01.05.1976, Side 5
:FRAMHALD:FRAMHALD:FRAMHALD:FRAMHALD:RRAMHALD:PRAMHALD:
VERKALÝÐSBLAÐIÐ
BANDAMENN...
frh.af bls. 2
ATG-: Það ætti að vera
fullljóst að þessi efling
tenglsa við heimshreyf-
inguna og samhugur heggja
er aflvaki í allri bar-
áttu. Margt má læra af
albönsku félögunum. Al-
þjóðahyggjan er sterkt
vopn gegn afturhaldi og
allri hentistefnu. EIK
(m-l) er það mikils virði
að finna að þjóðfrelsis-
menn og kommúnistar þess-
arrar hetjuþjóðar styðja
það starf og þá stefnu
sem EIK(m-l) hefur þróað
í baráttu við endurskoð-
unarstefnu í eigin röðum,
í Alþýðubandalaginu, í
Eylkingarhópnum, og síðasl
en ekki síst KSMl. Við
höfum einna helst átt í
baráttu við KSMl í upp-
byggingu flokksins. Þeir
hafa ráðist gegn núverandi
stéttgreiningu okkar,
samfylkingarstefnu, stef-
nufestu varðandi samein-
ingu marx-lenínista í
nýjan kommúnistaflokk og
talið einangrunarbrölt
sitt frá upphafi hafa
verið "marx-lenínisma”.
Samtökin kóróna svo hent-
istefnuna með stofnun
"kommúnistaflokks" á pás-
kum, sem hvílir, þrátt
fyrir nýja drætti, á þess
ari gömlu einangrunarste-
fnu.^ En þá er jafnvíst
að sú stefna og sá flokk-
ur eiga fátt skylt við
heimshreyfinguna annað
en naf’ið eitt. Flokkur
vinnunnar viðurkennir
aðeins eina hreyfingu
í hverju landi sem marx-
leníníska. Samtímis ver-
ður að slá föstu að álit
þeirra og allra annarra
bræðrasamtaka okkar er
ekki afgerandi, heldur
starfið og árangur þess:
sigurinn yfir endurskoð-
unarstefnunni og eyðandi
hentistefnu.
Hann eh óhjákvæmilegur,
sé grundvallarstefnan
rétt.
3g vil svo benda á að
KFI/ML, hinn nýji "flokk-
ur" KSML, ræðst að EIK(m-
l) fyrir utantíkissam-
skipti samtakanna. Þann-
ig dregur KFÍ/ML ekki
gagnrýnar og réttar ályk-
tanir af eigin einangrun,
heldur ræðst að erlendum
marx-lenínistum í raun,
rétt eins, og þeir taki
ekki sínar ákvarðanir á
eigin spýtur, heldur láti
EIK(m-l) véla sig. Þama
kemur hvað best í ljós
að grundvallarmunur er á
EIK(m-l) og KFl/ML.
Við munum að sjálfsögðu
nýta árangurinn af,heim-
sókn okkar til þess að
herða félagana og efla
baráttuna.'
Vbl.: Eitthvað að lokum,
Ari Trausti?
ATG: Albaníuförin er mik-
ilvægur áfangi í þróun
og einingarstarfi marx-
lenínista. Tengslin munu
efla og styrkja vináttu
þjóðanna. • Albanir styðja
íslenska alþýðu af heil-
hug í landhelgisbarátt-
unni og þegar við þökk-
•uðum þann stuðning eða
bentum á hinar stórkost-
legu viðtökur sem við
fengum í Albaníu, þá var
svarið alltaf á eina lund:
þetta er aðeins félagaleg
skylda. Svo einföld er
stéttaafstaðan.
BARATTA ISLANDS ER
FORDÆMI Viðtal við formann OFML Færeyjum
KVENNABARATTA...
frh.af bls.4.
Þessi staða gerir konur
oftast meira og minna
fjárhagslega háðar eigin-
mönnum sínum. Kýnferðis-
kúgunin, goðsögnin um
konuna sem móður, eigin-
konu, ástmey, gegnir allt
því hlutverki að halda-
við ódýrum og samvinnu-
þýðum vinnukrafti fyrir
auðvaldið.
Að sjálfsögðu leiðir einn-
ig af þessarri stöðu kon-
unnar andstæður milli
vinnandi karla og vinnandi
kvenna. En þær andstæður
eru sættanlegar og barátt-
an á að taka mið af að
sætta þær. Það er nauð-
synlegt, því þessar and-
stæður þjóna auðvaldinu
framar öllu, með því að
sundra alþýðufólki. Milli
auðvalds og vinnandi fólk£
er hins vegar ósættanleg
andstæða og kvennabarátt-
an verður að byggjast á
henni.
Þetta þýðir þó ekki að
ekki sé þörf á sérstakri
baráttu kvenna (eins og
trotskistar FBK halda
fram). Það þarf að berj
ast gegn hinni kynferðis-
legu kúgun og reyna áð
vinna stuðning allrar al-
þýðu karla sem kvenna við
þá baráttu.
Yfirstéttarkonur, forstj-
órafrúr, þingkonur o.s.
frv. eiga ekki samleið
í þessarri baráttu þar
sem kyn.ferðislega kúgun-
in er minniháttar, stétta-
kúgunin meiriháttar og
þær tilheyra einmitt
stéttaróvininumr
Þessa baráttu verður að
heyja með vel skipulögð-
um liðsmannasamtökum þar
sem bæði kyn starfa, þó
fyrst og fremst konur.
Það er'einkennandi fyrir
femínista að hallast að
laustengdum "starfs"hóp-
um og skipulagsleysi
(Rauðsokkahreyfingin) sem
í raun drepur niður starf
og veitit frelsi fyrir
hvers kyns hentistefnu og
hringlandahátt.Borgara-
leg öfl grassa í hreyfing-
unni að vild - árangur
starfsins því brota-
kenndur og enginn þegar á
reynir.
VlNNANDI KONUR; SKÖPUM
OKKUR BARÁTTUSAMTÖK, ER
STARFI Á GRUNDVELLI
stEttabaráttu;:
F’Dlitikina... frh.af baksióu
barátta innan ASl - bar-
átta milli hægri og vin-
stri,milli baráttufólks
og stéttasamvinnufólks.
Með sigri endurskoðunar-
stefnunnar í Kommúnista-
flokki Islands og afneit-
un Sósíalistaflokksins-
Alþýðubandalagsins á
virku pólitísku forystu-
hlutverki meðal verkalýðs
hefur skapast það ástand
sem nú ríkir.Logn og lá-
deyða í félögunum og
ríkjandi stéttasamvinna
í forystu hreyfingarinnar
Þessi þróun sýnir okkur
nauðsyn sterkrar póli-
tískrar forystu - verka-
lýðsflokks,sem byggir
á hugmyndafræði verkalýðs.
ins sjálfs,marx-lenínisma-
num. Sá flokkur verður
ekki byggður öðruvísi en
með vægðarlausri baráttu
gegn stéttasamvinnunni,
endurskoðunarstefnu gömlu
"verkalýðsflokkanna" og
hverskonar hentistefnu
og hentistefnuflokkum.
Hlutverk þess flokks er
að færa baráttuna & ný
inn í verkalýðsfélögin,
virkja sérhvern félaga
til baráttu fyrir hagsmun
um sfnum.
VERKAI.tDSBL.ADID HEFUR HIHGAÐ TTL LfTlÐ SKRIFAD IJM
BARÁTTIJNA í FÆREYJUM, OG ALLT OF LÍHB ER FJALLAD
-UM HANA í PÖLITÍSKRT UMFÆDU HÉR Á LANDT. VID MIJNUM
ÞVf PEYNA AÐ. FLYTJA LESEMDUM FRÁTTIR FRÁ FÆREYJUM .
OG BARÁTTUNNI' ÞAR, EFTTR ÞVI SEM EFNI STANDA TJL.
'
.
v . :■ /,; V-'* ' j: '■ "’i&í
. •
’
..
.
jTíðindamaður Verkalýðs-
|blaðsins- var ‘ á ferð í
|Færeyjum um páskana, og
Ihitti þá m.a. að máli
iHermann Oskarsson, for-
|mann Oyggjaframa (m-1) -
lOFML - en það eru systur-
lsamtök EIK(m-l) í Færeyj-
lum. Hér á eftir fer
|hluti viðtals sem tekið
|var við Hermann um stöð-
una í Færeyjum og um bar-
|áttu OFML. 1 næsta tbl.
Verkalýðsblaðsins mun svo
birtast kynning á OFML og
ýmiskonar efni um Færeyj-
ar bíður birtingar. Ein-
nig mun Rauðliðinn, fræði
legt málgagn EIK(m-l)
væntanlega birta sameigin
lega ályktun EIK(m-l) og
OFML.
Vbl.: Nú eru fiskveiðar
undirstaða efnahagslífs
|Færeyja; er þá ekki hugur
í félki hér .að færa út
Ifiskveiðilögsögu við
eyjarnar og berjast fyrir
|fiskverndun?
H.O.: Jú, við álítum að
]brýn þörf sé fyrir út-
Jfærslu við Færeyjar. Hér
|vinnur mikill fjöldi fél-
]ks við fiskveiðar og fisk
Ivinnslu og fiskurinn er
|því undirstaða efnahags-
legs sjálfstæðis okkar.
Á næstu árum munu strand-
|ríkin umhverfis okkur
jfylgja fordæmi Islands og
jflytja út sín fiskveiði-
Imörk. Þetta álítum við
lrétt, og þessi þréun þrý-
jstir mjög.á útfærslu við
jFæreyjar.
lEins og er, þá er- stér
Ihluti fiskjar okkar flutt
lur til Danmerkur, Englan—
Ids og fleiri landa og
fullunninn þar. Gegn
þessu viljum við berjast,
jog krefjumst þess að haf-
in verði uppbygging sjálf
stæðs iðnaðar í Færeyjum.
|Færeyjar téku sér tólf
sjómílna fiskveiðilögsögu
1964, og það hafði víð-
tæka þýðingu, bæði styrk-
ti það hinar fjarlægu
byggðir e.fnahagslega, og
styrkti efnahagslegt
sjálfstæði eyjanna yfir-
leitt. Nú er orðin hætta
á rányrkju fiskstofna við
eyjarnar, og þrýstingur
félksins á landstjérnina
að færa út, vex stöðugt.
Danir fara með utanríkis-
mál eyjanna og þar með
eru það þeir sem ákveða
hvort fært verður út hér
eða ekki. Því er það sem
við álítum að ef danska
stjórnin neitar að beita
sér fyrir útfærslu, þá
muni fólkið, kref jast
sjálfstæðis eyjanna. Lög-
þing Færeyja hefur ekki
ályktað um útfærslu, og
skýringin á því er lík-
lega sú, að meirihluti
þess er andvígur sjálfs-
stjórn Færeyja og mjög
fylgjandi nánum tengslum
við dani.
Utfærslan við Island er
mikill styrkur fyrir fær-
eyska sjómenn og verka-
lýðsstéttina í heild, því
hún styrkir mjög þau öfl
sem krefjast færeyskrar
útfærslu.
Vbl,: Hér á eyjunum hefur
verið mjög sterk andstaða
gegn inngöngu í Efnahags-
bandalag Evrópu (EBE), og
EBE-málið er tengt land-
helgismálum ykkar; hvað
viltu segja um þetta?
H.O.: OFML tók virkan
þátt í myndun alþýðuhreyf
ingar gegn EBE, "Fólka-
fylkingin móti EEC", á
sínum tíma og starfaði
innan hennar af miklum
krafti. Þetta var í raun
alþýðufylking og það var
aðeins fyrir baráttu henn
ar og styrkleika, að Fær-
eyjar voru ekki innlimað-
ar í EBE í fyrstu atrennu.
En baráttunni er engan
veginn lokið og nú eru
ýmiss teikn á lofti um að
nýjar tilraunir til að
lima eyjarnar inn í EBE,
séu á döfinni. Færeyskir
kapítalistar, sem eiga
nótaskip á stöðugum veið-
um í Norðursjónum, þrýstá
nú mjög á EBE-aðild, til
þess að tryggja það að
hagsmunum þeirra sé borg-
ið og þeir fái veiðikvóta
við'strendur EBE-landánna
Hins vegar kveður stjórn-
arsáttmáli flokkanna sem
skipa landstjórn Færeyja
skýrt á um það, að Fær-
eyjar gangi ekki í EBE,
að fiskveiðilögsagan við
Færeyjar.verði flutt út
og fleira sem beinlínis
varðar hag vinnandi al-
þýðu. Færeysk alþýða
krefst þess að við þetta
verði staðið. Þegar á
allt-er litið, þá má því
sjá, að mikil þörf er á
því^að nýju lífi sé blás-
ið í Fólkafylkinguna móti
EEC. OFML mun.eftir
fremsta megni stuðla að
því að þegar verði hafist
handa um endurreisn þess-
arar samfylkingar alþýð-
unnar.
yúl.: Oyggjaframi(m-l)
erú fremur ung ssuntök, en
mjög virk í baráttunni
hór; hvað er að segja um
þiróun þeirra?
H.0.: Byltingarhreyfing-
in hér er bæði ung og ó-
reynd. Við höfum því átt
við' marga erfiðleika að
etja, og ýmsa "barnasjúk-
dóma", en við höfum leyst
úr vandamálunum á grund-
velli marx-lenínismans.
Þing samtakanna sem hald-
ið var á síðasta ári,
sló föstu að OFML hefði
gert upp við hægri og
"vinstri" villur og til-
hneigingar sem skotið
hefðu upp kollinum í sam-
tökunum, og þar með var
stigið stórt skref fram
til stofnunar kommúnista-
flokks í Færeyjum. Höfuð-
verkefni^OFML er að fests
enn frekár rætur meðal
verkalýðsins og vinnandi
alþýðu og það gerum við
með þrotlausu starfi
meðal fjöldans - fyrir
fjöldann. Baráttan í
framtíðinni mun einkenn-
ast af tvennu: annars
vegar af baráttu fólksins
fyrir sjálfstæði og hins
végar af baráttu verka-
lýðsins og bandamanna
hans fyrir sósíalisma.
OFML álítur hlutverk sitt
það að byggja upp komm-
únistaflokk sem sé fær
um að leiða baráttu verk-
afólks og alþýðu gegn
danskri nýlendukúgun og
EBE-heimsvaldastefnu og
leppum hennar í Færeyj-
um - fyrir sósíalismanum.
Færeysk verkalýð'sstétt á
að leiðá baráttu alls
þéss fó.lks sem er kúgað
af nýlendu- og heimsvalda
stefnu.
■ Vbl,: Hver eru svo næstu
verkefni OFML í stétta-
baráttunni í Færeyjum?
H.O.: OFML hefur eflst og
vaxið, einkum síðustu 6
mánuði, og áhrif okkar
vaxa jafnt og þétt. Frá
og með 1.maí n.k., munum
við hefja reglulega út-
gáfu á blaði samtakanna,
og það teljum við vera
afar mikilvægan áfanga í
baráttunni. Þörfin á
marx-lenínískum kommún-
istaflokki er afar brýn
hér. Við munum því leggja
ríka áherslu á að vinna
.róttækt félk og baráttu-
fúst, á okkar band, og
herða mjög hugmyndafræði-
lega baráttu gegn endur-
skoðunarste fmmn i.
Þá er hægt að nefna að
við höfum hafið vinnslu á
leshring í grxmnnáiT:i í
marx-lenínisma á færeysku.
Við álítum að námsstarfið
muni styrkjast mikið við
það að eignast leshring á
móðurmálinu, endaNhefur
það háð okkur mikið að
þurfa að notast eingongu
við námsefni á erlendum
txmgum í náminu fram að
þessu. Einnig er & dö£-
inni meiri útgáfa, bæði
á fræðilegu málgagni OFML
- og á yerkum frumkvöðla
sósíalismans.
I stéttabaráttunni eru
höfuðverkefni okkar þessi
helst helst: að endur-
reisa stéttarfélögin sem
ra\mveruleg baráttutæki
launafélks, að endurvekja
"Félkafylkingxma móti
EEC", að berjast fyrir
útfærslu landhelgi við
Færeyjar.
Við erum bjartsýn á fram-
tíðina; baráttuvilji fólk
sins lofar góðu og bylt-
ingarhreyfingin er í örum
vexti í Færeyjum, jafnt
sem alls staðar annars
staðan í heiminum, sagði
Hermann Oskarsson að
lokum.