Verkalýðsblaðið - 28.11.1978, Side 7
22. tbl. 28. nóv. - 12. des. 1978
VERKALÍÐSBLAÐIÐ m
þjóðaratkvætfagrelóslu SHA
af staða
EIK(m-l)
til
Á síðasta landsþingi Sam-
taka herstöðvaandstæöinga
sem 4°-9o manns sátu dð
jafnaði var samþykkt til-
laga um að SHA beittu sér
fyrir Þjóðaratkvæðagreiðslu
um herinn/NATO. Ein helsta
röksemd flutningsmanna er sú
að SHA vanti nærtækt bar-
Ittuverkefni til þess að efla
starfið og gera markmið sam-
takanna nálægpri. Skel-
eggustu talsmennirnir eru
úr röðum Fylkingarinnar,
svonefnds Kommúnistaflokks
og fáeinir Alþýðubandalags-
menn.
EIK(m-l) taka afstöðu
gegn þjóðaratkvæðagreiðslu
sem þessari eins og sakir
standa.
EIK(m-l) eru ekki and-
snúin þjóðaratkvæðagreiðslum
þó'þær sóii ekki bindandi
heldur aðeins ráðgefandi
fyrir Alþingi. Gagnsemi
þjóðaratkvæða feist helst
í því að þau gefa .tilefni
til mikils áróðursstarfs og
vekja umtal og hreyfingu um
ákveðið mál hverju sinni.
Andstaða EIK(m-l) við
þjóðaratkvæði um hersetuna
og NATO-aðildina stafar ekki
af almennri vantrú á að slíkt
geri gagn. Hins vegar ætti
að vera ljóst að forsendur
fyrir árangri í þjóðaratkvæða-
greiðslunni eru m.a. þær að
andheimsvaldasinnar ráði yfir
lágmarksgetu og skipulagningu.
Það er hvorki hægt að þrýsta
á um þjóðaratkvæði nó takast
á við sjálfan undirbúninginn
að henni án sórstakra ráð-
stafanna, innan SHA.
Það er aðeins almenn full-
yrðing fylgjenda þjóðaratkvæóa
nú af ráðstefnu SHA að nauð-
synleg skipulagning og virk
hreyfing verði til i rás bar-
áttunnar fyrir úrslitum þjóð-
aratkvæðagreiðslunnar. Merg-
urinn málsins er auðvitað sá
að lágmarksskipulagning, lág-
marksvirkni og lágmarkssam-
staða nokkurs hóps herstöðva-
andstæóinga þarf til, áður
en lagt er í orustuna.
Skipulag SHA er í molum.
Miðnéfnd er einangruð frá
fylgismönnum SHA og hefur
ráðskast með samtökin.
Hverfandi hluti fylgismanna
starfar öðru vísi en svo að
þeir taka þátt í einni eða
fáum aðgerðum SHA, hverfa-
og landshlutahópar vinna
skrykkjótt eða alls ekki.
Og allar tilraunir til þess
að bæta úr voru kveðnar í
kútinn á landsráðstefnunni.
Virkni herstöðvaandstæð-
inga er slík að starfsáætlun-
um er ekki framfylgt nema
u.þ.b. 5o%, meðan þúsundir
áhugafólks sitja auóum hönd-
um og sumir hverfahópar í
Rvk. lognast útaf. Miðnefnd
SHA dregur enga lærdóma af
þessu og snúið var út úr
gagnrýni á landsráðstefnunni.
Pólitísk samtök, sórstaklega
Alþýðubandalagið, nota sér
samtökin og taka hagsmuni sína
fram yfir hag og ákvarðanir
samtakanna.
Samstaða herstöðvaandstæð-
inga er aðeins hálf og varla
það. Um meginmálið, að NATO
og hernum slepptum, þ.e.
Sovétríkin, ríkir engin sam-
staða. Hvernig er hægt að
rökfæra útgöngu úr NATO og
brottvísun hersins í viðamik-
illi þjóðaratkvæðagreiðslu -
hvernig er hægt að tryggja
sigur án þess að geta svarað
spurningunni: "En hvað um
Sovótríkin"?
Ef þorri virkrar forystu
SHA segir Sovétríkin vera
"hættulítil, hættulaus,sam-
herji, friðelskandi" o.s.frv.
þá er ósigurinn vís.
Að framansögðu þá telja
EIK(m-l) því fara fjarri að
rótt sé að leggja út í slag
við herstöðvasinna og NATO-
vini með jafn illa undirbúið
og sundurlaust lið og raun
ber vitni. Nær væri að beita
sér fyrir lagfæringum og
nauðsynlegum umræðum innan
SHA og utan. Önnur ytri
verkefni eru þegar næg eins
og allt of löng starfsáætl-
un sýnir glöggt. Ævintýra-
mennska Fylkingarmanna og
jábræðra þeirra er glópska
og tilræði við andheimsvalda-
baráttu nú um sinn.
EIK(m-l) sem slík eru að
sjálfsögðu óbundin af sam-
þykktum SHA. Þó munu þeir
félagar EIK(m-l) sem starfa
innan SHA ekki brjóta sam-
þykkt 1andráðste fnunnar í
starfi útávið með SHA. Inn-
ávið í SHA munu þeir beita
sér fyrir því að samþykktinni
verði breytt á næstu lands-
ráðstefnu. Hið sama munu
EIK(m-l) sem samtök gera.
Lesendabréf
Einangrunarstefna ?
Það hefur vakið furðu
mína hversu oft er skrifað
um hinn svo kallaða Kommún-
istaflokk íslands M/L í
Verkalýðsblaðinu. Satt
bést að segja er ég orðinn
langþreyttur á þessum
skrifum, því á þessu ári •
hefur lítið nýtt komið fram,
sem ekki hefur veriö skrifað
um áður.
Ég fletti í gegnum öll
tölublöð Verkalýðsblaðsins,
sem komið hafa út á þessu
ári og mældi hversu mikið
pláss hefur verið notað
undir orðaskak við flokks-
nefnuna. Hvorki meira né
minna en I078 dálksenti-
metrar eða tæplega 11 metrar
hafa farið undir þessi skrif
og skilst mér að það sam-
svari einu 8 síðna blaði.
Er þetta virkilega rétt stefna
Eru ekki hlutirnir að snúast
upp í andstæðu sína, samfara
þessari stefnu blaðsins?
Nærist ekki flokksnefnan
orðið á þessu orðaskaki við
ykkur?
Frá mínum bæjardyrum
séð er þessi stefna blaðs-
ins einangrunarstefna, því
með öllum þessum skrifum er
blaðið að einbeita sér að
fámennum hóþi, sem hefur
engin Ihrif á gang mála í
þjóðfélaginu, hópi sem fáir
kæra sig um að frétta nokkuð
af.
Til gamans tók ég einnig
saman hversu mikið pláss
hefur verið notað undir
skrif um Alþýðubandalagið
og forystu þess á árinu sem
er senn að ljúka. 8o2 dálk-
sentimetrar eða 8 metrar.
Þessa dagana er forysta
Alþýðubandalagsins að svíkja
launafólk þessa lands meira
en nokkru sinni fyrr og
virðist hafa einsett sér að
bjarga gróða atvinnurekenda
á kostnað launafólks. Væri
ekki ráð að einbeita sér að
slíkum herrum ásamt sam-
reiðamönnum þeirra í ríkis-
stjórninni því þeir hafa-
meiri áhrif á líf og kjör
fðlksins í þessu landi en
nokkur annar um þessar mundir.-
áskrifandi.
Um „Eldhúsmellur”
ágæta Verkalýðsblaðl
Við erum nýbúnar að lesa
bókina Eldhúsmellur eftir
Guðlaug Arason, sem kom út
hjá Máli og menningu nú í
haust. Okkur finnst full
ástæða til að Verkalýðs-
ENDASPRETTURINN EFTIR
Frh af opnu
dagskrá verða nokkur ávörp,
upplestur á ýmsu efni tengdu
baráttunni s.s. ljóðum,
greinabútum o.fl., Nafnlausi
sönghópurinn kemur í
heimsókn, skólahljómsveitin
flytur baráttusöngva, smá-
saga eftir Ara T. Guðmunds—
son verður lesin o.fl. Verka-
lýðsblaðið mun flytja nánari
fregnir af baráttuhátíð
Laugvetninga í næsta tölu-
blaði.
blaðið skrifi um svona bækur
sem eru á allra vörum.
Sjálfum finnst okkur bókin
einkennast af kvenrembu-
hugmyndum, þ.e. aðaláhersl-
an er lögð á þaó hversu vond-
ir karlmenn séu, í stað
þess að spyrja hvers vegna
margir karlar eru svona
afturhaldssamir og hverjum
svona afturhaldssjónar-
mið þjóna. Það er auð-
vitað jákvætt að kvenna-
baráttan sé tekin upp í
bókmenntum, en spurningin er
bara sú, hvort það sé ekki
skaðlegt baráttunni, ef það
er gert á þennan hátt.
Við skorum á Verkalýðs-
blaðið að fjalla um bókina
við tækifæri.
Lesendur
Ungir Allaballar:
Ekki spönn fram
ávið
Landsþing Æskulýðsnefndar
Alþýðubandalagsins (ÆNAB)
lauk fyrir skömmu.-
Þingið var afar fámennt.
Mjög fáir þingsetar voru úr
hópi "almennra" Alþýðubanda-
lagsmanna (AB).
Á þinginu var m.a. rætt
um stofnun æskulýðssamtaka
flokksins, en í ljós kom að
AB á sér litlar haldfastar
rætur meðal ungs fólks -
kosningafylgi er allt of
sumt. Allar hugmyndir um
skipulögð samtök voru því
aflífaðar á þinginu.
RÖTTÆKNISBLÆRINN
Eitt helsta einkenni
ÆNAB er dálítill róttæknis-
svipur ef miðað er við flokk-
inri sjálfan. Róttæknin hefur
alla jafna farið í taugarnar
á flokksforingjunum, svo
ekki hefur það bætt stöðu
ÆNAB. Hér sjást merki um
einhverjar andstæður í flokkn-
um — milli umbóta - og endur-
skoðannasinna annars vegar
og fólks sem vill eitthvað
betra og hefur ekki ánetjast
enn gerfimarxisma og skrif—
stofubákni flokksins. En þó
er ekki ólíklegt að eitthvað
af róttækninni sé ættuð frá
hentistefnumönnum sem eru að
reyna kaupa AB fylgi meðal
ungs fólks.
Landsþingið sendi frá sér
stjórnmálaályktun. Þar kemur
fram eitt og annað sem stað-
festir reikandann og róttækn-
ina innan ÆNAB. En reynslan
sýnir að gerðir fylgja ekki
orðum í þeim herbúðum. Orsök-
in er sú að ÆNAB ræður hvorki
yfir skipulagi, stefnu né
festu til þess að þróa fram-
sækna baráttu á andstöðu við
falsspekingana sem móta borg-
aralega hugmyndafræði og starfs
háttu Alþýðubandalagsins.
Framlag ÆNAB er eingöngu ár-
legt pappírsgagn.
RUGIANDI.
í ályktuninni er minnst
á að mikilvægasta verkefni
sósíalista se aðafhjúpa auð-
vald ske rfið. Líklega á svo
baráttan gegn því, markmið,
leiðir og kollvörpun þess að
koma af sjálfu sér. Um fjölda-
baráttu, markmið, leiðir, hlut
verk forystuafls o.fl. segir
ekki orð.
Framtíðarþjóðfélag ÆNAB er
sagt eiga að "afnema arðrán
manns á manni" - í því skyni
er rætt um "verkalýðseftirlit
með athöfnum opinbers-, einka-
og samvinnureksturs" Sós-
íalisminn kemur með því að
verkafólk passar upp á brask-
ara og arðræningja.
Afstaða ÆNAB til hús-
næðismála, lækkun kosninga-
aldurs, vinnuþrælkunar og
NATO/hersins er hins vegar
ágæt. En auðvitað er engu
orði minnst á kauprán, stétta-
samvinnu verkalýðsforystunnar,
Sovétríkin og erlenda ásælni
he'rlendis. Tilviljun ?
FLÍSIN í AUGANU
Mikilvægasta atriðið í
ályktun ÆNAB er afstaðan til
ríkisvaldsins. ÆNAB segir
þingræðisbaráttuna aldrei
geta orðið kjarna sósíal-
ískrar baráttu. Og rétt er
það, en hvað eru þessir menn
þá að gera í AB?
Miklir hentistefnumenn
mega þeir vera, enda kemur
það vel í ljós í lok álykt-
unarinnar. Þar segir að
berjast verði gegn árásum
á núverandi vinnulöggjöf
sein m.a. beinist að því að
banna verkföll að hluta. En
kæru AB-unglingar, framámenn
flokks ykkar í verkalýðs-
hreyfingunni taka þátt í undir
búningi nýrrar vinnulöggjafar
og í því að fela inntakið.
Afhjúpið þá 1 Takið upp bar-
áttu 1
Landsþing ÆNAB reyndist
hvorki vera lyftistöng fram-
sæknu starfi né leiða í ljós
valkost handa baráttusinnum.
Hann finna þeir í kommúnísku
samtökunum. Markmið ÆNAB er
að halda friðinn við flokks-
forystuna. f
2. kappræóu
fundur
Skemmti
legur og
fræðandi
EIK(m-l) í Reykjavík
hélt annan kappræðufund sinn
af sjö, 9*nóvember s.l.
Fundarefnið var atgangur
risaveldanna í NA-Afríku,
en andmælandi Örn ólafsson
frá Baráttuhreyfingu gegn
heimsvaldastefnu (Bgh.).
60—7o manns sóttu fundinn.
Örn ðlafsson rakti sögu
NA-Afríku, gagnrýndi f rani-
ferði Sovétríkjanna og
Kúbu í Eritreu og Eþíópíu,
tók afstöðu með annarri af
tveimur þjóðfrelsisfylkingum
í Eritreu og sagði að sósíal-
istar ættu að styðja þjóð-
frelsisbaráttu Eritrea.
Ennfremur lýsti hann því
yfir að rangt væri að styðja
Mengistu-stjórnina í Eþíópíu.
Fulltrúar VERKALÍÐSBLAÐS—
INS röktu einnig sögu Eþíópíu
og Eritreu ásamt Sómalíu.
Þeir sýndu fram á hvernig
Sovétríkin breyttu afstöðu
til Eritreu með gagnbyltingunni.
í Sovétríkjunum á ó.ára-
tugnum, hvernig þau halda
uppi fasísku stjórnkerfi í
Eþíópíu og brjóta heims-
valdaásælni sinni leið í
NA-Afríku. Fulltrúarnir
gagnrýndu svonefndar "vinstri"
hreyfingar fyrir afstöðu og
aðgerðaleysi.
1 fjörugum umræðum kom í
ljós að afstaða Örns var
ýmist alls ólík afstöðu
annarra í Bgh eða þá að hann
foröaðist að draga ályktanir
um eðli Sovétríkjanna og
Kúbu. Örn tók sömu afstöðu
og trotskistar Fylkingarinnar
á fundinum: 1 Sovétríkjunum
ræður hvorki verkalýður né
auðstétt - heldur ný stéttl
Bæði Örn og Fylkingarmenn
reyndu að leiða umræðuna út
í orðræður um Kína með litlum
árangri. Fulltrúar EIK(m-l)
minntust á að samvinna væri
möguleg með Bgh um stuðning
við Eritreu að því tilskildu
að Bgh styddi báðar frelsis-
fylkingarnar, krefðist frá—
hvarfs Kremlar- og Havanaliðs-
ins o.fl. Að vísu er Bgh
hverfandi afl, en getur nú
sýnt vilja í verki, ef til er.
Milli franisöguræðna og
umræðna fluttu Þorvaldur
Árnason og Pétur Guðlaugsson
góða tónlist, m.a. ný lög
við ljóð Jóhannesar úr Kötlum.
RÆTT VIÐ RAUÐSOKKA
Framhald af baksíðu
því máli t.d. hvort Sovét-
ríkin séu heimsvaldasinnuð
eða ekki. Það er því frá—
leitt að ætlast til að við
tökum slíka afstöðu því með'
því myndum við útiloka svo
stóran hóp. Þar af leiðandi
er ekkert því til fyrirstöðu
að samfylkja með kvenna—
samtökum eins og Menningar-
og friðarsamtökum ísl. kvenna,
MFlK, (sem taka einarða
afstöðu með heimsvaldastefnu
Sovétríkjanna, innskot VBL.)
svo framarlega sem þær gera
ekki kröfu um að tekin sé
afstaða til Sovétríkjanna.