Stúdentablaðið

Årgang

Stúdentablaðið - 01.12.1980, Side 9

Stúdentablaðið - 01.12.1980, Side 9
l. des. ’blaöið ■ 9 við framliðna konu um menninguna og menntunina og um það hvernig sœl alþýðan kemur þar nœrri 3 VANGAVELTUR C 1 — Þú spuröir um menninguna, segir hún og tekur fram kaffi- gögnin og býr sig til aö hella uppá. — Viltu hafa þaö svart? — Já, segi ég. — Nú er kaffið yfriö nóg og kannski það sé menningin — ekki fæst hann Davið Kaffiexport lengur. Hún er fljót aö hella uppá — ekki i fyrsta skipti sem hún gerir þaö enda er hún komin fast að átt- ræðu. Hún býður mér til stofu en þar stendur dekkað borð. — Bragðaðu á sykurvarn- ingnum, segir hún. Menningin — manni gafst nú ekki mikill timi hér fyrrum til að hugsa stift um hana. Maður hugsaði fyrst og fremst um það eitt að draga fram lifiö. Ég lagði fyrir mig sauma — ungum stúlkum i den tid stóð ekki margttil boða — annað hvort var aö fara i fiskinn eöa i sauma — já sumar fóru i kaupavinnu og komu aldrei aftur. Þær greru fastar við moldarkofana og ólu barna- hópana einsog biðukollan fræin. — En menningin, spyr ég og sötra kaffið. — Svona eftirá — þá finnst mér aö menningin hafa verið vinnan. Ég þótti nokkuð góð saumakona hér á árum áður. Heldri frúrnar söttust eftir mér til sauma. Ég fór ihúsogsaumaði — já ég gistiþar i nokkra daga og borðaði góðan mat — ja það má eiginlega segja aö ég hafi verið farandsaumakona. Ég saumaði fallega kjóla og kápuflikur sem ég sjálf hafði aldrei efni á að eignast. Á heim- ilum þessara heldri frúa heyrði ég leikið á hljóðfæri og farið meö sögur óg útlenzk ljóð. En þetta hreyföi aldrei viö mér — þetta var andblær frá veröld sem ég átti ekki heima i — ég kunni bezt viö fornsögurnar og svo bifliusög- urnar. Þessar heldri frúr — þær eru nú allar löngu dánar — þær sögðust fara með þessi ljóð og lesa rómana ef þeim leiddist. En ég hef alltaf haft ljóö og sögyr meö inni gleðina — já þegar mér hefur liðið vel. Ef mér leiddist — sem kom nú sjaldnast fyrir — þá gekk ég vestur á mela. — Voru þessar konur sem þú saumaöir fyrir menntaðar? — Tja þær voru nú menntaðar á sina visu. En þeirra menntun var annarrar artar en min — þær voru ekki alþýðukonur — þær höfðu alltaf stúlkur sem hrein- gerðu og snerust i eldhúsinu. Þessar heldri frúr, sem voru ind- ælar frúr, þær spiluðu gjarna og skröfuöu mikiðsaman — aðallega umnáungann, já ogsvo fóru þær meö þessi ljóð og sögur á dönsku. Ég sá þær aldrei vinna — karlarnir sáu um að skaffa þeim peninga — ef þær þurftu þá á pen- ingum aö halda. Þær voru kannski sjálfsmenntaðar einsog ég — en þó á aðra visu. Sauma- skapurinn var min menntun og menning. Hann var atvinnan rhin — lifsbjörg min. Og að þessu leyti var ég þeim ólik en lik svo ótal öörum mörgum bæði konum og körlum. Vinnan var hjá sumum áþján — en ég reyndi alltaf að lita á vinnuna sem menntun mina og menningu — ég veit ekki hvað hefði orðið um mig ef vinnan hefði reyrtst, vera ok. Vinnuþrælkunin var mikil — sér i lagi hjá karl- mönnunum sem tóku lifiö alvar- lega og voru það hraustir aö þeir létu ekki undan. En Guð minn góöur — það voru svo margir sem létu undan — drukknuðu i brennivini og ónyjungshætti — ekkert er auðveldara en að flýja lifið — ekkert er eins ömurlegt. — En var þér aldrei hugsað um þjóðfélagið — að það mætti breyta þvi og snúa til réttlætis. Hugsaðir þú aldrei úti það að þú gætir breytt þjoöfélaginu með viö horfi þinu til menntunar? — Þúspyrö stórt vinur. Ég man ekki fyrst hvenær ég heyrði þetta orö þjóöfélag — þetta er félag þjóðarinnar? ekki satt? Jú, mikil skelfing. Ég hef alltaf viljað breyta þjóðfélaginu — ég var lengi vel Alþýðuflokksskona — jú allar kynsslóðir ætla sér að breyta félaginu en þetta er ekki auðsótt mál — þeir sem stjórna þessu blessuöu félagi hafa það svo gott og þeim finnst allt vera i stakasta lagi — en þaðer bara allt i stakasta ólagi! Allir vinna — en það fá ekki allir greitt sannvirði fyrir vinnu sina. Alltaf skal ein- hver klipa af — einhvers staðar! Undarleg náttúra aö læðast oni vasa annarra — og það oft i skjóli laga! Ég saumaði — það var at- vinna min — það var menntun og menningmin. Enégvareiginlega einhverskonar konuvarningur — ég seldi mig ekki sem hóra heldur sem þjálfuð nál — aðrar konur seldu sig sem þrautþjálfaðar af- þurrkur - ef ég má segja svo — enn aörar sem eldhúsmellur einsog þið segiö i dag En allt til þess aö draga fram lifið. Þannig hefur þetta gengið og já sú stund kemur aö þetta breytist. — En eftir á að hyggja hvað finnst þér um menntun þina og menningu nú þá þú ert komin á efri ár? — Tja, ég er ekki bitur þó svo það megi kenna i svarinu: Ég held aö þessi menntun og menn- ing min hafi verið fremur rýr. Sjáöu til vinnan er góð og gegn i sjálfri sér— en við erum ekki vinnudýr — jájá, vinnan skapar ýmislegt I manninum, en ef hann má aldrei vera aö þvi að lita uppúr stritinu — til hvers þá? Eitt er vist að skaparinn blessaður hefur aldrei hugsað þetta svona — einhverjir hafa fordjarfað þvi spilverki-já, menntun min og menning kom sér að góðu haldi og kemurennnú á efri árum sé ég afarvel hve mikils ég hef fariö á mis i gamladaga. Ég hefi alltaf haft góöa heilsu og nýti elliárin vel og les og les og nýir áöur óþekktir.heimar blasa við mér. Ekki það að menning og menntun sé lestur bóka einvörðungu — nei heldur í bland með likamlegri vinnu. Já, vinur , það er þjóðráð hjá klnverjunum að senda menntamennina annað veifið eða reglulega útá akrana! Kannski ættuð þið vestur á melum aö fara á sjóinn eða i almenna verka- mannavinnu tvisvar á vetri? Aö svo mæltu kveðjumst við — ég og þessi gamla kona — kaffiö var gott þó exportslaust væri. Kannski er maður eitthvað nær þvi hvað menntun og menning er — hvað alþýðumenning og al- þýðumenntun ec. Saumakonan og ég kveöjumst. — Er viljinn frjáls eða er hann bundinn takmörkunum? — Ræður þú örlögum þinum eða ert þú fórnarlamb örlag- anna? — Er myndin af sjálfum þér, frá þér komin eða sérðu sjálfan þig i gegnum aðra? — Mótar rikið þig, eða þú rikið? Allar þessar spurningar bera að sama brunni, þ.e. hvort hægt sé að lita á hlut sem einangrað fyrirbæri eða eingöngu I tengslum viö annað. Ljóst er aö maðurinn er félags- vera. Hann er aldrei einn og verður þvi aldrei skoðaður án samhengis við umhverfi sitt. Samskipti hans við aðra hlýtur að leiða af sér vissa háttsemi, siöi og venjur, gildi og norm, sem siöar sumhver bindast i lögum. Allt þetta mótar manninn og er jafn- framt mannleg afurö. Maöurinn er þá bæði skapari og arfleiðandi menningar þess þjóðfélags em hann fæðist i. Og til hvers er ég að draga þessar vangaveltur fram i dags- birtuna? Jú, mig langar til að vita, að hve miklu leyti við erum gerendur þessa þjóöfélags og að hve miklu leyti við erum þol- endur. Kanna hvaöa form gilda i þessári þjóöskipan okkar. Hverjir hljóti völdin, hverjir lúti þeim og af hverju þaö ákvarðast. ,,Hvað ætlarðu að verða þegar þú ert orðinn stór, gói minn?” er oft viðkvæðiö. Fólki er sett viss gata tií að ganga lifsleiöina eftir. Visst gildismat á öðrum mann- eskjum og hlutum, viss rammi, innan hvers okkur er gert skylt að haga okkur. Og hlutverk i lifinu sem er allt þetta, og samkvæmt fyrirmælum stingum við okkur ofan I vissa holu. Detti ein- hverjum I hug að neita boðinu, eða geti hann ekki annað, er hann þegar orðinn minniháttar Þolandi þjóöfélags. Ein arfleifö fyrri tima er sú skoðun aö manninum beri að mennta sig. Og af henni eimir eftir. Háskólinn er stökkpallur til áhrifamestu staða þjóðfélagsins. f seilingarf jarlægð biöur háskóla- manna 6. og hæsta stétt pýramid- ans, ef hliðsjón er höfö af þjóðfé- lagsskala Wolfgangs Edelsteins og Sigurjóns Björnssonar, þar sem þeir er mest álits njóta eru þeir sem peninga, menntun og valdið hafa. Verkamanninum er markaður bás i botni pýramid- ans, þ.e. 1. og lægstu stétt þjóðfé- lagsins. Ku könnun þessi fá niður- stöðu sina frá almenningi, á þeirri forsendu að verkamanna- vinna sé i litlum metum höfð. Kannanir sýna einnig að hreyfan- leiki milli stétta er afar litill og i raun haldi hver stétt áfram að fæða af sér sina lika. Og hvernig skyldi standa á þvi? — Hafa ekki allir jafnan aðgang aö menntun? — Hvaö er það sem ákvaröar að sumir ganga þá leið til enda en aðrir ekki? — A sér staö einhver mismunun? Svo hlýtur að vera. Barni er áskipuð staða eftir m.a. búsetu og stööu fjölskyldu. Ahrif hins fyrrnefnda á náms- og starfsval eru mjög sterk. Hvaða tilgang sér unglingur, ættaður frá Fiskifirði, i þvi að mennta sig, þegar gnótt atvinnutækifæra er á staönum, sem ekki krefst si- menntunar? Og hvað várðar stöðu i fjölskyldu, þá vegur for- dæmið sem foreldrar gefa, þungt á vogarskálunum. Lifsskoðanir þær sem barn verkamannsins sækir úr sinu nánasta umhverfi, eru yfirleitt af allt öðrum toga spunnar en þær sem sonur læknisins á að venjast. Af þessu leiðir að menntunin er bæði skil- yrði og afleiöing stéttskiptingar. En segjum að þrátt fyrir letj- andi aöstæöur, takist syni verka- mannsins, fyrir eigin atorku, aö komast til mennta. — Hverju þjónar mennta- kerfið? Er það ekki máttugasta aflið til viðhalds og endurnýjunar rikjandi þjóðskipulags? Getur skólun róttæklingsins breytt honum i íhald? Veröur hugsjónin að engu þegar valdaaðstöðunni er náð? Hættir sósialisminn að vera til um leiö og sigur er unninn? Ein afleiðing stéttskiptingar er flokkaskipun vor. Þaö eru minnst tveir „vinstri” flokkar viö lýði hér á landi. Hvar eru verkin sem tala? Risa flokkarnir undir merkjum? Við búum við lýðræöi. Ræöur þá lýöurinn? og þá komum við að lokaspurningunni: Mótar lýðurinn rikið, eöa rikiö hann? i hverju er þetta lýðræði fólgið? Jú i kosningum á 4 ára fresti. Flokksvélarnar fara i gang. 1 kosningabaráttu á að leiöa lýðinn i skilning um allan „sannleik- ann”. A götum úti, i vinnu, heima, i útvarpi, i sjónvarpi, glymur i eyrum lýðsins allra handa slagorö, loforð, og áheit, skrum og fals, og stundum jafn- vel lygi og ýkjur. Þingmenn eru aö kaupa sér atkvæði. Hlutverk flokksins er að telja lýönum trú um aö hann sé hinn eini rétti. Véla lýðinn á sitt band i krafti mælsk- unnar. i riti eftir Platon, orðar Sókra- tes þaö svo, að til sé tvenns konar sannfæring, annars vegar sem skapi þekkingu, og hins vegar sem skapi sannfæringu. Sú siöar- nefnda sé á valdi mælskusnill- ingsins. „Ef mælskumaður og læknir ættu að kappræða þaö á fundi hvor yrði kosinn læknir, þá yrði læknirinn að gjalti, en hinn málsnjalli hlyti kosningu.” — Og þetta virðist raunin. 1 krafti flókins kerfis, sem þeir einir hafa aðgang aö sem á valda- stól sitja, geta þeir borið kjós- endum hvað sem er á borð, mál- flutningi sinum til stuðnings. Upplýsingaflóði er lýðn- um skammtað i gegnum fjöl- miðla og flokksblöð sérhvers flokks fyrir sig. Sumir meðtaka þennan boðskap sem heilagan, frá hendi þess flokks em þeir hafa ánetjast. Hinn sem ekki hefur gert upp hug sinn, veit ekki hver fer rétt meö. Sannleikurinn er fjórviður. Er lýðurinn hæfur til að kjósa? Svara þú mér. Aldis Baldvinsdóttir.

x

Stúdentablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.