Stúdentablaðið

Ukioqatigiit

Stúdentablaðið - 01.12.1980, Qupperneq 11

Stúdentablaðið - 01.12.1980, Qupperneq 11
1. des. blaðiö n r>r> r>r> Verkamaðurinn Smásaga Höf. Svava Jakobsdóttir Stundum fannst henni uppþvottavatnið ólga í hálsinum á sér og óhreinir, kámugir diskar frá þrjúþúsundsexhundruðogfimmtíu liðnum dögum riða í loftháum stöflum á eldhús- bekknum, reiðubúnir að kasta sér á hana og grafa hana undir. Þá f lýði hún og settist i stól- inn við stof ugluggann og gleymdi því, að hún átti mann og börn og hluti, sem lifðu á henni eins og snikjudýr. Og þegar hún hafði sann- fært sjálfa sig um, að henni væri frjálst að gleyma þeim, varð hún alein í heiminum og fullkomlega haminqjusöm. Þangað til maðurinn fór að vinna i lóðinni. Þarna hjó hann og gróf í moldina rétt fyrir utan gluggann allan guðslangan daginn: gamall, lítill og lotinn maður í gráum vinnu- buxum með hakann stöðugt reiddan til höggs: háttbundnar, hægar, næstum þrjózkulegar hreyfingar frá mitti og fram í fingurgóma, upp og niður, síendurteknar eins og hjá dauð- þreyttum manni í leikfimisal, sem heyrir ekki, þegar gefin er skipun um að hætta. Og konan hugsaði: Drottinn minn. Eru til frum- stæðari áhöld í þessum heimi en haki og skófla? Maðurinn var henni ekki alls kostar ókunn- ugur. Til skammst tíma hafði hann verið bóndi á rýrri jörð inni í sveitinni. Núna var hann fluttur í kaupstaðinn og vann í görðum. I fyrstu hafð: hún verið fegin, þegar hann byrjaði að laga umhverfis húsið. Hún hafði hlakkað til að fá grænan blett, þegar sumraði. En þetta var mikið verk, og mann- inum dvaldist dag eftir dag fyrir utan gluggann og hann hjó og gróf. Hún einsetti sér að f ylgjast ekki með verkinu. Henni kom þessi maður ekki við, en líf hans allt þrengdi sér samt lævislega inn í vitund hennar: hvernig hann hafði grafið svona í moldina með haka og skóflu öllum stundum. Eins og hann héldi, að hann gæti yfirunnið blett og blett í einu og gert jörðina sér undirgefna— eins og hann ' héldi, að hann gæti sigrað hana að lokum, ef aldrei linnti þessum sömu hreyf ingum upp og niður, upp og niður, upp og niður. En smáskeinur voru einu áverkar, sem hann veitti henni. Hún hélt áf ram að vera jaf ngrýtt og grá og ófrjó undir fótum hans: jafnþver- móðskufull og stolt, líkt og það væri af náð einni saman, að hún leyfði þessu mannkríli og skepnum hans að ganga á ser: örugg um, að hún mundi aldrei finna fyrir fótataki þeirra hvort eð væri. Konan hafði séð þessar jarðir, sem nú voru flestar komnar í eyði: og það hvíldi yfir þeim mikið og ömurlegt vonleysi. Og í stað þess að láta líf sitt og starf sér að kenningu verða f lutti hann haka sinn og skóf lu með sér i kaupstaðinn. Og hélt áfram að höggva og grafa. En þótt konan reyndi að horfa ekki á hann, skynjaði hún ætíð hreyfingar hans upp og niður, upp og niður: fyrst sem óþægilega truflun, siðan sem hótun. Það var eins og maðurinn væri kerfisbundið að brjóta niður með haka sinum og skóflu þann varnargarð, sem hún hafði hlaðið milli sín og hlutanna: og þá gerðist þetta: diskar í þúsundatali, bollar glös, krukkur, kústar, skálar komu skoppandi, veltust inn, hióðust upp, veittust að henni alls- ráðandi, almáttug: og peysa drengsins með gatiðá olnboganum settist í kjöltu hennar: og hún f ór að stoppa og stoppa og tókst aldrei að komast fyrir gatið, og hún var orðin gömul, og garnið þraut, og hún tók að slita grá hár úr höfði sínu til að stoppa með, og þá var sonur hennar orðinn f ullorðinn maður og vaxinn upp úr peysunni. Og þá vissi hún, að það voru hlut- irnir, sem höfðu lifað, en ekki hún. Konan spratt upp af stólnum, Hún ætlaði ekki að þola þetta lengur. Hún þoldi ekki þennan mann og þetta eilífa ot hans og strit: þetta hjakk hans í jörðina, sem.engan endi ætlaði að taka og engan árangur bar. Heilan mannsaldur hafði hann rótað í mold: ráðizt á jörðina með haka og skóflu: og hvergi sáust þess merki. Samt bar hann þessi verkfæri enn, líkt og storkandi áminningu um tilgangsleysið á þessari jörð. Hún smeygði sér í kápuna. Hún ætlaði út til hans og segja honum að hann mætti hætta í. dag: veðrið væri of hráslagalegt: og i kvöld ætlaði hún að biðja manninn sinn að segja honum upp og fá einhvern með ýtu til að Ijúka verkinu. Gamli maðurinn í garðinum rétti úr sér, þegar hann sá hana nálgast. Því nær sem hún kom, því betur rétti hann úr sér, og hægt, en markvist, þumlungaði hann sig upp í hæð sina. Og nú, þar sem hún stóð f yrir f raman hann, sá hún, að hann var ekki lítill maður. Og hann var ekki heldur lotinn. Var það bara f yrir jörðinni, sem hann beygði sig? Koma hennar virtist hvorki vekja undrun hans né forvitni. Tillit hans var rólegt og hávaðalaust og í því eitt- hvað, sem gaf til kynna, að hann væri hafinn yfir sigur eða ósigur: slíkt skipti ekki lengur máli. Og konan sagði allt annað en það, sem hún hafði ætlaða sér að segja. Hún spurði, hvort mætti ekki bjóða honum kaffi. Hann þáði það og fór inn með henni. Og meðan hann beið eftir kaffinu, stóð hann við eldhúsgluggann og horfði inn í sveitina. ,,Héðan sést bærinn minn," sagði hann. Konan fór út að glugganum, af því að hún vildi gera honum til þægðar, og hún horfði inn hrjóstrugan og gróðurlítinn dalinn . „Annars ergamla bæjarstæðið bak við mel- barðið en ég f lutti bæinn upp á hólinn. Vegna útsýnisins. Þaðan sést alla leið til hafs, og í góðu skyggni sá ég öll skip, sem sigldu fyrir f jarðarmynnið. Þið ættuð að skreppa þangað einhvern tíma og virða fyrir ykkur útsýnið." Svo drakk ahann kaf f ið, þakkaði f yrir sig og fór og hélt áfram að vinna i garðinum. En konan hóf störf sín í eldhúsinu. Hún stóð við uppþvottinn og tók ekki eftir sífelldlega endurteknum, háttbundnum hreyfingum sínum fram og aftur, fram og aftur, því að hún var að hugsa um manninn, sem flutti húsið sitt upp á hól með haka og skóf lu. Magnús Þór Jónsson Frh. af bls. 5 Þaö er i raun og veru málið: þú getur farið i gegnum alla mina texta — þú finnur ekkert um það hvernig þú átt að lifa lifinu. Þvi, eins og ég segi, ég geri bara at- hugasemdir.” —en kannski i þeirri von að fólk taki eft'r þeim og reyni að bæta úr hlutunum sjálft? ,,Ég er ekki þykkjuþungur maður sem stendur með fingur á lofti.” — ”þegar fingurinn bendir á tunglið horfið fiflið á fingurinn”? ,,Já, þarna er maður áttúru- lega að benda fólki á að láta ekki draga sig á asnaeyrum. Maður verður að pæla eitthvað sjálfur. Ég get ekki gefið neinar upp- skriftir. En ef fólk pælir eitthvað i þessum textum sem ég hef gert, þá veröur það áreiðanlega ein- hvers visari og það kemst eflaust að einhverjum persónulegum niðurstööum. En ég ber enga ábyrgð á þvi. Ég hef jafnvel reynslu af þvi, að menn hafa pælt svo mikiö i minum textum, að þeir hafa fengiö út miklu flottari hluti en mér voru nokkurn „tima i huga. Ég erþó sannfærður um það að slíkt hefur talsvert gildi fyrir fólk, a.m.k. persónulega. Þetta fær þó fólk til að pæla sjálft, fá þetta út fyrir sjálfan sig i gegnum sjálfan sig.” — Það er sem sagt manneskjan sjálf sem gildir? „Þaö er manneskjan sjálf sem gildir. Þaö er alveg satt. Þaö er málið.” Þorvaröur Arnason.

x

Stúdentablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.