Stúdentablaðið - 01.12.1996, Qupperneq 7
I
DESEMBER .996
STÍIÐENTABLAfilÐ
b í ó
7
Hoþbvj
nevferrau
hraoa
Hraði - mynd um ungt fólk og amfetamín heitir
heimildamyndin sem þeir Torfi Frans, Stephan
Stephensen og Arnar Knútsson vinna nú að
undir stjórn Ingvars nokkurs Þórðarsonar. Að
sögn Torfa Frans fjallar myndin í stuttu máli um
amfetamínneyt-
endur í Reykjavík
og þá þann hóp
sem ekki telst til
forfallinna fikni-
efnaneytenda.
„Myndin er meira
um hobbýneyt-
endur, byrjendur
og skrítna hópa
sem margir
mundu ekki bú-
ast við að væru eiturlyfjaneytendur en við höfum öruggar sannanir
fyrir að séu það. Myndin er leikin og sett upp á svipaðan hátt og
myndir eins og Man bites dog og Rob Roberts, þótt við reynum
ekki að stæla neitt heldur byggjum á góðum grunni. Allar persónur, sem koma fyrir í myndinni, eru leiknar en
byggðar á raunverulegum aðilum og allir atburðir eru sviðsettir en byggðir á raunverulegum atburðum. Sögu-
þráðurinn er sá að við eltum spíttsendingu frá Amsterdam, fylgjumst með hvernig henni er smyglað, spjöllum
við burðardýrið og fylgjumst síðan með því þegar hún lendir í höndum smásala í Reykjavík. Að lokum tökum
við langa helgi með honum þar sem hann leiðir okkur inn í undirheima Reykjavíkur, inn á skemmtistaði, í
partí, líkamsræktarstöðvar, á fótboltavelli og fleiri staði þar sem fólk kaupir af honum. Við spjöllum því við
spíttsalann og kaupendur og fáum þeirra viðhorf til amfetamínneyslu," segir Torfi. Inn í þetta blandast svo
fréttaflutningur eða viðtöl við ekta fólk eða löggur, meðferðarfulltrúa og fígúrur. „Viðtölin eru þó ekki játningar
fyrrverandi neytenda, - það verða engar silúettur," segir Torfi.
Tökum á Hraða lýkur í byrjun desember og verður myndin sýnd í sjónvarpi.
toppurinn&botninn
í síðastliðnum mánuði
Toppurinn Margt
skemmtilegt gerðist í síð-
asta mánuði og topparnir
voru mjög mörg og góð fyll-
erí. Sérstaklega var fyrsta
helgin í október alveg topp-
helgi. Þá fór ég að sjá ofsa-
lega skemmtilegt leikrit sem
heitir Sigrún Sól og eftir
sýninguna var setið á
svamli og drukkið og étið.
Kvöldið var í alla staði vel
heppnað og fór ég að sofa
seint og síðar meir með
bros á vör. Toppurinn var nú
samt laugardagsmorgunninn þegar bróðir minn vakti mig með heitu
kakói og heitu rúnnstykki, það var best. Ég var þunn og vitlaus og
fékk þennan yndislega morgunverð og síðan fór ég aftur að sofa.
Botninn Hræðilegast fannst mér að þurfa að upplifa 26. október
aftur. Ég er Flateyringur og dagurinn var mér erfiður, ég hélt að mér
myndi ekki líða eins illa þennan dag og raun bar vitni. Þegar líða tók
á daginn fór ég að upplifa allar hörmungarnar aftur, t.d. þegar klukk-
an varð fimm fór ég að hugsa um hvað hafði gerst klukkan fimm 26.
október í fyrra. Mér leið verst um fjögurleytið, því þá komu einmitt
fréttirnar fyrir ári um hverjir hefðu látist í snjóflóðinu. Maður upplifði
þetta allt saman aftur, allar tilfinningarnar og áföllin. í rauninni var þetta
eins og þröskuldur; ég var að Ijúka einhverju sem ég hélt að ég hefði
lokið fyrir ári.
Brynhildur Einarsdóttir
sagnfræðinemi á orðið
Félagsstofnun stúdenta
í samstarfi við Hróa hött og Vífilfell
Bjóða HÍ-stúdentum
/
1 pizzu og gos
Föstudaginn 29. nóv. kl. 12 (meðan birgðir endast)
I kaffistofunum í aðalbyggingu, Arnagarði, Eirbergi,
Lögbergi og Odda