Stúdentablaðið - 01.12.1996, Blaðsíða 12
DESEMBÉR 1996
*
i
Verkefnastyrkur FS 1Q0.QQQ krónur
Félagsstofnun stúdenta auglýsir eftir umsóknum um Verkefnastyrk FS. Styrkurinn er að
upphæð kr. 100.000 og verður veittur í febrúar 1997.
Nemendur HÍ sem skráðir eru til útskriftar í febrúar og þeir sem eru að vinna verkefni
sem veita 6 einingar eða meira í greinum þar sem ekki eru eiginleg lokaverkefni geta
sótt um styrkinn.
Umsóknir skulu vera nafnlausar og hafa að geyma lýsingu á verkefni, Ijósrit af einkun-
num og, ef unnt er, umsögn leiðbeinanda um verkefnið og staðfestingu hans á að
umsækjandi hyggist útskrifast (upplýsingar um nafn umsækjanda skulu afmáðar). Með
umsókn fylgi í lokuðu umslagi upplýsingar um nafn, heimilisfang og símanúmer
umsækjanda og frumrit vottorða nemendaskrár og leiðbeinanda.
Umsóknir skulu berast ~,
framkvæmdastjóra FS fyrir 17. desember nk.
I Félagsstofnun stúdenta
Sorgarsaga
krónunnar
og ævisaga
Benjamíns
Eiríkssonar
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson, doktor í stjórn-
málafræði, gefur út tvær bæk-
ur fyrir jólin. Fyrri bókin heitir
Hádegisverðurinn er aldrei
ókeypis og hún er 448 blað-
síður, gefin út af Hinu íslenska
bókmenntafélagi. Bókin er yf-
irlit helstu kenninga stjórn-
málahagfræðinnar, hugmyndir
Adams Smith, Karls Marx,
Friedrichs von Hayek, Miltons
Friedman, Johns Maynards
Kaine og fleiri hugsuða. í bók-
inni ræðir Hannes líka um
ýmis íslensk efnahagsmál, til
dæmis um sorgarsögu ís-
lensku krónunnar síðustu sjö-
tíu árin og um stjórn fiskveiða,
um það kerfi sem við höfum
komið okkur upp til að stýra
fiskveiðunum og um íslenska
þjóðveldið í Ijósi hagfræðinnar.
Hannes bendir einnig á að,
greiningin í bókinni kunni að
leiða til tillagna um stjórnar-
skrárbreytingar til að takmarka
seðlaprentunar- og skattlagn-
ingarvald ríkisins.
Síðari bókin heitir Benjamín
Eiríksson í stormum sinna tíða
og fjallar um hina viðburðaríku
ævi Benjamíns Eiríkssonar,
sem varð vitni að valdatöku
Hitlers og þinghúsbrununum í
Berlín árið1933. Benjamín átti
vinkonu og dóttur í Moskvu
sem báðar hurfu í hreinsunum
Stalíns inn í gúlagið. Benjamín
stofnaði Sósíalistaflokkinn
ásamt Einari Olgeirssyni en
varð viðskila við hann ásamt
Héðni Valdimarssyni. Hann
lauk doktorsprófi frá Harvard-
háskóla í Bandaríkjunum undir
handleiðslu hins heimsþekkta
hagfræðings Josephs
Chumpeter. Eftir að hafa starf-
að hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðn-
um kom hann heim og varð
áhrifamikill efnahagsráðunaut-
ur og bankastjóri. Hann lagði
á ráðin um að hætta haftabú-
skap og taka upp frjálsa versl-
un en fékk síðan, að hann tel-
ur sjálfur, vitranir af himnum
ofan og dró sig í hlé og hefur
eftir það sinnt biblíulestri og
ritstörfum.