Iðnneminn - 01.05.1997, Síða 14
Frjáls mi&lun /04/97
LÁNASJÓÐUR ÍSLENSKRA NÁMSMANNA
UMSÓKN UM NÁMSLÁN 1997-1998
Allir sem sækja um lán 1997-1998 skulu skila sérstöku umsóknareyðublaði til LÍN. Framhalds-
nemar fá umsóknareyðublöð send. Nýnemar og þeir framhaldsnemar sem skipta um skóla eða
námsbraut skulu skila grunnumsókn.
Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu sjóðsins, lánshæfum skólum hérlendis, útibúum banka og
sparisjóða og sendiráðum Islands.
Umsóknir veröa aó hafa borist LÍN fyrir:
1. áqúst vegna láns á haustmisseri;
1 ♦ desember vegna láns á vormisseri;
1. mars ef nám hefst eftir 1. apríl 1998.
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfrestur rennur út taka fyrst gildi fjórum vikum eftir að joær
berast sjóðnum. Ef námsmaður á ekki gilda umsókn á vormisseri 1998 er umsóknarfrestur um
sumarlán 1. mars.
FYLGISKJÖL OG SKILAFRESTUR
Við viljum vekja athygli námsmanna á grein 5.1.3. í úthlutunarreglum LIN um skil á fylgiskjölum.
Samkvæmt (Dessari grein ber sjóðnum að líta svo á að námsmaður, sem ekki skilar inn umbeðnum
gögnum á réttum tíma, sé fallinn frá umsókn. I samræmi við þessa reglu verða umsóknir þeirra
námsmanna sem ekki sinna fylgiskjalabeiðnum sjóðsins felldar úr gildi. Hafi námsmaður sem
fellur frá umsókn með þessum hætti fengið afgreitt lán á námsárinu, verður lánið gjaldfellt og
innheimt.
Við viljum því hvetja alla námsmenn til aá skila inn
gögnum innan tilskilins frests.
SKRIFSTOFA LÍN
Skrifstofa sjóSsins er við Laugaveg 77 í Reykjavík. Hún er opin frá kl. 09:15 til 15:00 alla virka daga. Símanúmer
sjóSsins er 560 40 00 og grænt númer er 800 66 65. Bréfasími er 560 40 90. Skiptiboröiö er opið frá kl. 09:15 til
1 2:00 og frá kl. 1 3:00 til 16:00.
Starfsmenn lánadeildar veita upplýsingar og ráögjöf í sima og meÖ viðtölum. Símatími lánadeildar er alla virka
daga frá kl. 09:1 5 til 1 2:00. Viðtalstími er alla virka daga frá kl. 11:00 til 15:00.
Mánudaga: Almenn viðtöl
Þriðjudaga: Norðurlönd
Miðvikudaga: Enskumælandi lönd
Fimmtudaga: Island
Föstudaga: Onnur lönd.
Starfsmenn innheimtudeildar veita upplýsingar í síma alla virka daga frá kl. 09:15 til 12:00 og frá kl. 13:00
til 16:00. Afgreiöslutími gjaldkera er frá kl. 9:15 til 15:00.
LÁNASJÓÐUR ÍSLENSKRA NÁMSMANNA
LAUGAVEGI 77, 101 REYKJAVÍK