Ljósberinn


Ljósberinn - 15.07.1922, Qupperneq 2

Ljósberinn - 15.07.1922, Qupperneq 2
218 LJÓSBERINN gera eitthvað gott, og það er að líta á sjálfan sig og vita, hvort hann er demantur, og ekki kol. ----o----- Þektu sjálfan þig. „Glögt er auga á annars lýti, en ekki sín eigin“, segir gamall málsháttur. petta er sannmæli. Margur sér svo glögt yfirsjónir annara, en ekki sínar eigin; hann þekkir ekki, sér ekki sjálfan sig. En þá getur hann heldur ekki iðrast þess, sem hann hefir gert rangt. Litli drengurinn, sem sagði, að hann væri ekki angurvær út af því, sem hann hefði gert, heldur af því, að það hefði komist upp, hann iðraðist ekki. Tökum dæmi af herbergi. þegar búið er að skjóta hlerum fyrir gluggana og niðdimt er inni, þá safn- ast þar fyrir ryk og óhreinindi. En ef þú teku hler- ana frá og hleypir sólskininu inn, þá sérðu könguló- arvefina hanga hér og þar og rykið í hrúgum; þá þarftu óðara að fara og sópa og þurka af í her- berginu. J>ú getur ekki horft á þennan óþverra. Eins er því varið, ef vér ’opnum hjörtu okkar fyrir orði Guðs, þá skín það inn og þá förum við að flýta okkur að hreinsa burtu óhreinindin og koma öllu í röð og reglu. Ef þú ert fús til að elska Guð og hlýða honum, þá veitist þér létt að finna hann. Opnaðu því hjarta þitt, barnið gott, eins og þú opnar gluggana á herberginu þínu; þá kemur Guð og tekur sér bústað í hjarta þínu eins og sólskinið

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.