Ljósberinn


Ljósberinn - 15.07.1922, Síða 6

Ljósberinn - 15.07.1922, Síða 6
222 LJÓSBERINN konungur fram og faðmaði að sér konuna sína og börnin sín og nú laust alt fólkið upp fagnaðarópi og stráði nú rósum fyrir fætur ungu drotningarinnar. Og svo fóru konungur og drotning ásamt börnum sínum heim til hallarinnar, og í höllinni og allri borginni var nú haldin hátíð hin mesta. Hvert ein- asta hús í borginni var uppljómað. B. .T. -------------------------o---- Bæn og þakklátssemi. pað er sagt frá fátækri ekkju á Jótlandi, að hún bað Drottinn að gefa sér brauð handa börn- unum sínum; hún reiddi sig á þessi orð Drottins: „Eg er verndari ekkjunnar og faðir föðurleysingj- anna“. Hún gekk fram hjá opinni kirkju, gekk inn og kraup til bænar við altarið, og lagði allar sínai' áhyggjur fram fyrir Drottin og bað hann hjálpar. pegar hún gekk út úr' kirkjunni, þá stóð þar maður, sem gaf henni tíeyring, því að hann sá, að hún var fátækleg og döpur í bragði. Hún hugs- aði ekki: „Til hvers er maðurinn að gefa mér þetta lítilræði? Hvað ætli tíeyringur bæti úr þörf minni?“ Nei, hún tók þakklátlega við tíeyringnum og gekk burt. í þeim sömu svifum kom maður neðan fra sjó og sagði henni, að þá nótt hefði veiðst mikið af síld, svo að hægt væri að fá nokkrar síldir fyrir fáa aura. Hún brá við og fór til sjómannanna með tíeyringinn og fékk fyrir hann svo mikið af síld, að hún gat varla borið það í einu. Sjómennirnir

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.