Ljósberinn - 04.08.1922, Qupperneq 2
LJÓSBERINN
Ljósberina ársgamalí.
Hinn 6. ágúst í fyrrasumar kom út fyrsta tölu-
blað Ljósberans, og nú í dag, 5. ágúst, er >á ár
liðið síðan hann hóf göngu sína meðal barnanna.
Á þessum liðnu tólf mánuðum hefir hann eignast
marga góða vini og kaupendatalan mun nú vera nær
þúsundi, — þar af rúm 500 hér í Reykjavík og 100
í Hafnarfirði. En það er alt of lítið til þess að hann
geti borgað útgáfukostnaðinn sjálfur, og komið að
tilætluðum notum. En Ljósberinn hóf göngu sína í
fyrra í Jesú nafni og honum hefir farnast vel,
og eins og minst hefir verið á hér að ofan, eignast
marga vini, — sem ekki vilja missa hann aftur. 1
vetur gaf hahn út fallegt jólablað, alt með myndum,
sálmum og fallegum sögum. Bókhlöðuverð þess var
að minsta kosti 2 k r ó n u r, en það var selt á eina
5 0 a u r a, svo öll börn í bænum gætu eignast það.
Nokkuð af því seldist og talsvert var gefið. Ekki
hefði Ljósberinn getað gert þetta, ef Drottinn
hefði ekki sent góða menn, sem hjálpuðu til þess að
börnin ættu kost á svona fallegu og ódýru jólablaði.
J>að er altaf gott að treysta D r o 11 n i, og það hefir
Ljósberinn fengið reynslu fyrir þetta ár, og þess
vegna heldur hann öruggur á f r a m, þótt stundum
sé ýmislegt erfitt. Hann treystir því, að hann fái
haldið þeim vinum, sem hann þegar hefir fengið, og
margir fleiri bætist við. Hann vill hafa góð áhrif
á börnin, vekja hjá þeim guðrækni og lotningu fyrir
hinu háleita, skyldurækni og trúmensku til orða og
verka. Og, kæru foreldrar, styðjið nú að því að