Ljósberinn


Ljósberinn - 04.08.1922, Blaðsíða 3

Ljósberinn - 04.08.1922, Blaðsíða 3
LJÓSBERINN Ljósberinn fái unnið hér mikið verk í þessu efni. Styðjið hann með því að lofa börnunum ykkar að kaupa hann. Sparið sízt af öllu þá aura, sem gætu stuðlað að því að beina börnunum ykkar inn á gæf- unnar braut, — inn á Guðsríkis brautina. það er ekki aðeins trú, heldur r e y n s 1 a miljóna manna, sem lifað hafa, að „Jesús e r v e g u r t i 1 h i‘m- insins heim, í heimkynnið sælunnar þ í' e y ð a“. — Við óskum öll, að börnin okkar kom- ist í þetta þreyða heimkynni sælunnar, þegar æfi- degi þeirra lýkur, hvort sem hann nú verður langur eða skammur, en þá verðum við að gæta skyldu okkar að benda þeim á veginn, sem liggur þangað, — þann e i n a veg, sem lagður er, sem er J e s ú s Kristur. IJann sagði sjálfur: „Eg er vegurinn og sannleikurinn og lífið, enginn kemur til föðursins nema fyrir mig“. Og það er, í fæstum orðum, tak- mark Ljósberans að benda börnunum á þann veg. í dag verður þetta afmælisblað boðið í mörgum húsum hér í bænum. — Á morgun er 6. ágúst —■ hinn eiginlegi afmælisdagur Ljósb e‘r‘a‘n‘s. Þá væri honum kærkomnasta afmælisgjöfin, ef mörg börn kæmu heim á afgreiðsluna og gerðust kaupendur að honum. Líka má panta hann í s í m a 5 2 8. þeir, sem ekki eiga börn sjálfir, geta keypt hann og gefið börnum, sem þeir þekkja, annaðhvort hér í bænum eða út um land. Með því gera þeir tvent gott: gleðja börnin með kærkominni gjöf og styrkja Ljósberann. I dag og á morgun verður tekið á móti þessum kærkomnu afmælisgjöfum á afgreiðslu Ljós- herans í Bergstaðastræti 27.

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.