Ljósberinn


Ljósberinn - 04.08.1922, Page 4

Ljósberinn - 04.08.1922, Page 4
LJÓSBERINN Dýrðlegur draumur. Og sjá, eg er með þér og varðveiti þig, livert sem þú fer. (I. Mós. 28, 15.). petta sagði Guð við Jakob ísaksson. Og hið sama segir hann við okkur, ef við kappkostum að ganga á hans vegum. Jakob hafði aldrei farið neitt að heiman frá for- eldrum sínum. Hann hafði verið óskabarn mömmu sinnar, lifað kyrlátu lífi og ekki verið neinn æfin- týramaður, eins og Esaú bróðir hans. Nú átti hann að leggja af stað í langferð, til „framandi lands“; en Guð var með honum. Lítinn farangur hafði hann, og engan þjón eða fylgdarmann. Og þó hefir enginn konungssonur nokkurntíma ferðast með göfugra föruneyti en hann. því að þegar hann lá og svaf undir beram himni, vöktu englar Guðs yfir honum og Guð sjálfur talaði við hann. það er sem sé sagt frá því, að þegar hann var á þessari ferð, lagðist hann eitt kvöld til svefns úti á víðavangi og hafði stein undir höfðinu. Dreymdi hann þá að hann sá stiga, sem stóð á jörðu og náði til himins; og englar Guðs fóru upp og niður stig- ann. En Guð sjálfur kom til hans og sagði: „Landið, sem þú hvílist á, mun eg gefa þér og niðjum þín- um. Og af afkvæmi þínu munu allar ættkvíslir jarð- arinnar hljóta blessun. Og sjá, eg er með þér og varðveiti þig, hvert sem þú fer. Ó, hve dýrðlegur draumur! pað var engin furða þó að Jakob yrði frá sér numinn, enda varð hon-

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.