Ljósberinn - 15.01.1938, Síða 4

Ljósberinn - 15.01.1938, Síða 4
tiííSBEllINN Þeir eru vafalaust margir, seni inni- lega þrá að öðlast frelsi Guðs barna, en vita ekki livað þeir eiga að gera til þess, eða livernig þeir eiga að byrja. Samvizka þeirra er vöknuð, tillinning- in lifnuð og skilningurinn farinn að skýrast. Þá langar til að vera sann- kristnir, en þeir vita ekki bvernig þeir eiga að stíga fyrsta sporið. Kæri vinur! Sé jiannig ástatt um þig, er í sannleika vert að leita góðra ráða. Leitumst þá við að athuga og gera okkur ljóst, hvernig við eigum að byrja bvaða spor við eigum að stíga og verðuin að stíga, Iielzt undir eins í dag. Ferð ísraelsmanna frá Egiptalandi til Kanaan var löng og erfið. Fjörutíu ár voru þeir á leiðinni, unz þeir koin- ust yfir jórdan. En byrjuð var ferðin daginn þann, er þeir fóru frá Ramses til Súkkót. Hvenær stígur inaðurinn fyrsta veru- lega sporið til að losna undan valdi beimsins og syndarinnar. Það gerir hann þann dag, er hann byrjar að liiðja Guð af hjarta. í hverja byggingu er einii steinn- inn lagður fyrst og eitt hamarshöggið slegið fyrst. Nói var 120 ár að byggja örkina; en smíðin byrjaði á því, að liann lagði iixina að rótum fyrsta trés- ins, sem úr skyldi byggja. Musteri Salómons var mikil bygging og vegleg en byrjun þeirrar byggingar var sú, að fyrsti, stóri steinninn var lagður við rætur Móríafjalls. Hvenær hefst verk heilags anda í hjarta mannsins? Það befst — að því er séð verður - þann dag. er maður- I i áaq. »1 dag er lijálpræðisdagur.« inn byrjar að úthella hjarta sínu fyr- ir Guði í bæninni. Viljir þú öðlast frelsi Guðs barna og óskir að vita hvað þú átt að gera, ræð ég þér að fara umlir eins í kveld á næsta kyrrlátan stað sem þú finnur og snúa þér til Drottins vors og frels- ara, Jesú Krists, og grátbæna hann um að frelsa sál þína. Segðu honum, að þú liafir heyrt og lesið, að hann taki að sér syndara, að hann liafi sjálfur sagt: »Þann sem til mín kemur, mun ég alls ekki frá mér reka.« Segðu honum, að þú viljir fela J)ig algert honum á vald, að þú kann- ist við að |)ú sért slæmur maður, sylidugur og sekur, hjálparvana og vonlaus, og ef hann ekki frelsi þig, sé úti um þig. Grátbændu hann að skapa í þér nýtt lijarta og gefa þér sinn heilaga anda. Ó, far J)ú til bans svo fljótt sem auðið er og segðu allt Jietta við hann, Drottin vorn og l'rels- ara, Jesúm Krist, ef J)ér er í sannleika ant um hag sálar Jiinnar. Segðu honum Jietta eins og þér er eðlilegast, með Jiínum eigin orðum. Sértu veikur og læknir komi til J)ín, munt J)ú geta sagt lionum livar sárs- aukinn er. Og ef sál þín finnur til sjúkleika síns, munt þú líka vita, hvað J)ú átt að segja við Krist. Hikaðu ekki, J)ótt J)ér finnist |)ú vera óverðugur. Bíð ekki eftir neinu. Það getur ekki hlotist annað en illt af að bíða. Kom þú til Krists, alveg eins og þú ert. Því meiri þörí' er þér að leita til hans. Þú verður aldrei hetri við það að halda þig frá honum. Ottastu ekki, Jió að bæniu J)ín sé

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.