Ljósberinn - 15.01.1938, Blaðsíða 22

Ljósberinn - 15.01.1938, Blaðsíða 22
I. J ó S II E lt 1 N N var of dramblátur, til þess að taka því boði. En á heimleiðinni skall á oíviðri mikið, svo að konungur komst í hinn mesta lífsliáska. Þá snerist honum hugur, svo að hann sneri til baka og sótti þarlenda trúboðann. Þetta var árið 1828. Þremur árum síðar lét Tanhasú skírast, og hlaut nafnið Georg í skírn- inni. En árið 1862 bafði konungur látið vinna svo kappsamlega að kristniboð- inu á Topga, að allir eyjarbúar höfðu tekið kristni. Þá stefndi hann þeiin öllum saman til mikillar hvítasunnu- hátíðar. Að morgni hvítasunnudagsios komu 5000 eyjarbúar saman víðsveg- ar að, allir búnir sínum fjöllitasta búningi að sið þeirra, og námu stað- ar undir skuggasælum bjúgaldinatrjám. Georg konungur sat fremstur og roskn- ir og ráðnir menn í kringum bann. Allur þessi söfnuður söng nú sálm um jesúm Krist, konung konunganna. Síðan flutti Taníta, yfirdótnari kon- ungs, bæn, og er henni var lokið, hljómaði einum rómi frá munni þús- undanna: »Amen, amen!- Að því búnu töluðu bæði innlendir ræðumenn og erlendir kristniboðar. Eyrir rúmum mannsaldri höfðu þess- ir þjóðflokkar lifað á ránum og kúg- að og etið hverjir aðra; en nú voru þeir orðnir einn fjölmennur, kristinn söfnuður. Þegar kveldsólin varpaði sínum hinztu geislum, var allur söfnuðurinn kallaður til guðsþjónustu. Tók nú hver maður sér blys í hönd og gekk upp á hæðina, þar sem kirkjan stóð, sem þeir höfðu byggt sér. Hvítasunnuhá- tíðinni var svo lokið með því að syngja Guði lofsöngva, fyrir hina dá- - samlegu náð sína, að hann Jiefði 22 breytt Tonga úr morðgryfju í friðar- böln. 2. »Elskið óvini yðar*>. Einu sinni var kristniboði einn í Kína að lialda guðsþjónustu á sunnu- degi. Heiðinn Kínverji einn kom þang- að eins og af liendingu í fyrsta skifti. Kristniboðinn talaði út af orðunum: »Elskið óvini yðar«. Næstu sunnudaga kom þessi heið- ingi ekki aftur til guðsjijónustunnar og þótti kristniboðanum Jiað miður. Þá bar svo til, að liann fann þennan sama heiðingja á förnum vegi nokkru síðar; hann spyr hann |)á, bví hann hafi aldrei kornið aftur til guðsþjón- ustu hjá sér. Þá svaraði heiðinginn: »Þegar ég koin til yðar, voruð þér að tala um kærleikann til óvina vorra; en nú átti ég svo marga óvini, að ég þurfti langan tíma til að fá J)á til að sættast við mig. Einn þeirra var sér- staklega harðúðugur og vildi ekki sátt- um taka. En jafnskjótt sem ég hefi lúngið hann til Jiess, kem ég aftur á guðsþjónustur yðar«. Þessi heiðingi skildi, livað bann þurfti að gera, til Jiess að hann gæti orðið kristinn maður í anda og sann- leika, liann vildi ekki láta skírast og vera tekinn í tölu kristinna manna, fyr en hann hefði fullnægt J)ví skil- yrði að hann væri sáttur við alla. 3. Eftirbreytni Krists vinnur sigur. Einu sinni fékk kristniboði á Ind- landi bréf frá heiðingjum þess efnis, að þeir skoruðu á hann að taka að sér stjórn skóla nokkurs, sem þeir höfðu stofnað árið áður, og veita þar tilsögn í biblíunni daglega í hverjum bekk - skólans. Kristniboðann furðaði svo á þessu,

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.