Ljósberinn - 15.01.1938, Blaðsíða 27

Ljósberinn - 15.01.1938, Blaðsíða 27
LJÓSBERINIS Pá ætlaði elska móðurinnar næstum að bera hana ofuriiði. Hún [lerröi tárin af augum sér og leit þeim augum á son sinn, sem enginn nema móðir getur litið — hann hafði svo algerlega gefist Drottni. Nú átti lítil stúlka, yngsta barnið hennar, að skrifa nafnið sitt. Stafirnir hennar voru sumpart smáir og sumpart stórir, en pó tókst henni að skrifa: »Alice Miclvel frelsuð«. Nú var öll fjölskyldan búin að skrifa nöfnin sín, nema faðirinn; hann var enn að lesa í dagblaðinu sínu. Georg Michel var að minnsta kosti einlægur og góður heimilisfaðir. Börnin voru eigi Iiið minnsta lirædd við hann, enda [>ótt hann væri stundum nokkuð hvassorður. »Harry, fáðu mér blaðið og blek og penna,« sagði hánn. »Þetta er ekkert nema leikur, og í honum get ég gjarna tekið ininn pátt«. Síðan skrifaði hann undir nöfnin hinna: »Georg Mich.el f . . . .« En áður en liann gæti skrifað meira, þreif kona hans í handlegg honum og hrópaði: »Nei, nei, pabbi, skrifaðu pað ekki!« Hann reyndi pá góðlátlega að bægja lienni frá sér. Hann fór að reyna að hlæja, en [>ar sem [>au stóðu öil í kring- uin hann með tárin í augunum, réð hann ekki við tilfinningar sínar, og hann féll á kné við lilið konu sínnar og barna. Og á þeirri stundu gaf hann Drottni hjarta sitt. lJetta var sannarlega blessunarrík heimilisguðsþjónusta. C. H. Spurgeon er talinn einhver mestur prédikari meðal Ehglendinga. Petta er eitt dæmið um áhrif prédikana hans. .• • •- Villtu börnin. Suður í Astralíu lítur allt öðruvísi út en hér lieiina iijá oss. Eins og ykkur er kunnugt úr landa- fræðinni ykkar, liggur pessi liluti jarð- arinnar að mestu leyti í hitabeltinu, og þess vegna er veðurfar allt öðrn- vísi þar en hér heima. í janúar og fe- hrúar, þegar hér er kaldur vetur, er þar brennandi hili, sem skrælir allan gróðtir og þurkar allar uppsprettur. Afleiðing þessa er sú, að stórir flákar eru eyðimerkur einar, óbyggðar öllum mönnurn. Það er og ofur skiljanlegt, að vegna þessa ólíka loftlags, vex þar annar gróð- ur og annars konar tré en hér heima. Venjur og hættir eru þar einnig all- ir aðrir en liér. En eitt er þó sameig- inlegt fólkinu á hinni fjarlægu eyju: Við eigum liinn sama trúfasta Guð föður og hinn sama frelsara. Sá Guð, sem gætir vor, gætir einn- ig íbúa Ástralíu. Einnig til þeirra hefir Drottinn tal- að hin huggunarríku orð: »ÁkaIla mig á degi neyðarinnar, og ég mun frelsa þig, og þú skalt vegsama mig«. (Sálm. 50, 15.). í strjálbyggðasta hluta Ástralíu, úti á grassléttunum, liggur þorp eitt, er nefnist High-Hill. Skammt frá þorpi þessu er bóndabær, þar sem bóndi býr ásamt tveini smámeyjum. Þessar litlu stúlkur heita Jane og Nellie Duff. Jane er finnn ára en Nellie er aðeins hálfs fjórða árs. Snennna morguns í ágústmánuði sendi móðir telpnanna þær út á liæð í grendinni, til að sækja lyng til mat- ar. Oftsinnis hafði Jane verið send þangað ein síns liðs, en fyrir þrábeiðni Jtafði hún nú leyft, að Nellie færi 27

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.