Ljósberinn


Ljósberinn - 23.09.1933, Blaðsíða 5

Ljósberinn - 23.09.1933, Blaðsíða 5
L JÖSBERINN 273 Satja efíir " GuíScunu Cátusdottur, vikub fy fir . ^ „tjósljerann'í »Eins og ég fari að tala, um það!« sagði Lilla og lét sem henni mislíkaði, »það er naumast að þú heldur að ég sé þagmælsk!« »Þú mátt ekki móðgast af þessu, góða,« sagði Soffía angurvær. »Ég veit, að það er óhætt að treysta þér.« »En hvað ætli ég hugsi eiginlega?« sagði Lilla alt í einu og spratt upp úr sæti sínu. »Að sitja hér og masa eins og ég hafi alls ekkert að gera. Jú, það er nú því líkt! Ég sem bæði á að baka og steikja og þvo alla borðdúkana. Frú- in lagði svo fyrir áður en hún fór út, hún skrapp eitthvað ofan eftir, og dubb- aði sig í nýju kápuna með stóra hattinn. Kannske hún hafi búist við að mæta lækninum, ha, ha, ha! — En Soffía, nú skal ég segja þér dálítið — farðu nú inn til hennar Rúnu, á meðan kerlingin er ekki heima.« »Þarna gafstu mér gott ráð,« sagði Soffía alls hugar fegin. »En blessuð gerðu mér aðvart, ef þú sér til hennar.« »Auðvitað!« sagði Lilla. Rétt á eftir hljóp Soffía upp stigann. Hún drap blátánum við þykku flos- ábreiðuna í stiganum, og hélt niðri í sér andanum, eins og hún væri hrædd um að hún vekti einhvern. Hún skund- aði að dyrunum á herberginu hennar Rúnu litlu, þar staðnæmdist hún andar- tak og lagði eyrað að hurðinni, til þess að vita, hvort hún heyrði ekki eitthvað til barnsins, en svo var eigi. Soffía tók í hurðarlásinn og ætlaði að ganga inn, en hurðin var harðlæst. Þá gægðist hún inn um skráargatið, en hún gat ekki séð nema svo litla spildu af herberginu, og þar var hvorki Rúna né rúmið hennar. Soffía bar þá munninn að skráargat- inu og kallaði inn: »Rúna mín, ertu þarna, elskan?« Ekkert svar. Soffía hækkaði róminn: »Það er ég — það er hún Soffa þín —■ opnaðu fyrir mér ef þú getur.« Ofurlítið þrusk heyrðist inni í her- berginu, og stundarkorni síðar sá Soffía þá sjón, sem leið henni seint úr minni. Að vísu var það Rúna litla, sem kom til dyranna, en glaðværðarsvipurinn var svo gersamlega horfinn af andliti henn- ar, að hún líktist miklu fremur gam- almenni en barni. Hún læddist yfir gólfið og skimaði óttaslegin til allra hliða, eins og hún væri að foröast eitt- hvað óguríegt. Hárlokkarnir hennar voru úfnir og hengu ofan í augun, sem gægðust út undan þeim full af þögulli angist og skelfingu, sem gekk Soffíu svo til hjarta, að henni lá við gráti. Rúna gekk fast að hurðinni og hvísl- aði kjökrandi í gegn um skráargatið: »Það má, enginn opna, það er hérna lítill fugl, sem á að vera í búrinu sínu. Enginn má opna — uss — uss — hafðu ekki hátt. Rúna er sofnuð — hún var

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.