Ljósberinn - 01.01.1942, Page 12

Ljósberinn - 01.01.1942, Page 12
10 LJÖSBERINN THEODÓR ÁRMASON: VAR [Frh.] Ég fór snemma að nauða um það við foreldra mína, að þau gæfu mér skíði. Og til þess að friða mig, var gripið til þess algenga ráðs, að gefa mér fyrst tunnustafi með ánegldum táböndum. En satt að segja eru slík »skíði« háskagripir og alls ekki til þess fallnir, að á þeim g e t i krakkar lært á skíðum, — það er eiginlega hvorki hægt að ganga á þeim, eða renna sér á þeim, þó að ekki væri nema ofan af mykjuhaug. Enda voru þessir tunnustafir líklega eina leikfangið, sem faðir minn gaf mér í bernsku, sem ég' var ekki ánægður með. En því meiri varð þá gleðin yfir því, þegar hann gaf mér fyrstu skíðin. Ég hekl ég hafi aldrei á æfinni verið eins glaður yfir nokkurri gjöf, annari en fyrstu fiðl- unni, sem foreidrar mínir gáfu mér. Afmælið mitt er snemma í desember, og þó að skammt væri þá til jóla og jóla- gjafa, var mér allt af gefin einhver af- mælisgjöf. Desembermánuður var þess vegna langsamlega merkilegasti og á- nægjulegasti mánuðurinn í öllu árinu, fyr- ir mér, — samanhangandi til-hlakk og fögnuður. Mér er sérstaklega minnisstæð- ur afmælisdagurinn, þegar ég fékk skíð- in, fyrir tvennt: ég var svo yfir mig glað- ur fyrst um morguninn, — en svo fádæma- hryggur litlu síðar, þegar mér var sagt að úti væri glórulaus bylur. Ég vaknaði fyrir allar aldir, — og glað- vaknaði strax, því að ég vissi svo sem hvaða dagur var, Og það var venjan, að mér voru gefnar afmælisgjafirnar »á rúm- ið«. Og nú var ekki hægt að sofa, — »spenningurinn« var svo mikill. En þau sváfu enn, pabbi og mamma, — og' ég mátti ekkert láta á mér bera, og það var þyngri þrautin. Ég' ætlaði nú samt að reyna að þrauka þetta og liggja kyrr, eins og mús undir fjalaketti. Ég ætlaði bara að láta fara sem bezt um mig í rúminu, og bylti mér eitthvað til í þeim tilgangi. En þá- gerðist einhver ósköp. Það varð sá dómadags hávaði, rétt eins og húsið væri að hrynja. En það var eins og það væri af mínum völdum, og rétt hjá rúminu mínu. Pabbi og mamma vöknuðu með andfælum, og ég heyrði að mamma hljóð- aði upp yfir sig og spurði, hvaða óskapa undirgangur þetta væri, en pabbi svar- aði undur rólega: »Það er víst bara rétt að byrja, afmæl- ið hans Tidda«. Síðan kallaði hann til mín, í myrkrinu: »Ert þú vaknaður, Tiddi minn, eða erl þú að ganga í svefni — á skíðum!« Ég tókst á loft í rúminu. Þetta eru þá s k í ð i! Og það reyndist rétt vera. Þ\ í að nú fór pabbi fram úr og kveikti á lamp- anum. Og þá sá ég að þarna lágu skíði og eitthvað fleira í hrúgu á gólfinu. Pabbi hafði reist skíðin upp við rúmstokkinn hjá mér, kvöldið áður, þegar ég var sofnaður, og ætlast til að ég fyndi þau, þegar ég vaknaði. En það hafði. ekki verið gert ráð fyrir þessum óskapagangi. Og þarna var fleira en skíðin. Þar var líka rauður eik-

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.