Ljósberinn - 01.01.1942, Blaðsíða 18

Ljósberinn - 01.01.1942, Blaðsíða 18
2f> L JÖSBERINN alla söguna.. og þá fæ ég að heyra hana líka«, sagði hann. »Já, en pabbi, ég lofaði Stíg bara að bíða á herberginu hans, þangað til hann kæmi aftur — ég gat því ekki gert að því, aö mér var svo boðið hingað«. »Ekki þér, góða Elsa, heldur Stíg!« »Já, en ég gat ekki brugðist Stíg og kom- ið upp um hann«, sagði Elsa ákveðin, »og einkum af því að það var ég, sem hafði stungið upp á þessu«. »Upp á hverju, skelmirinn þinn dæma- 3ausi?« »Að fara í hcms föt, svo að þess. yrði ekki vart, að hann væri ekki heima«. »M ert sannarlega hugvitssöm telpa«, sagði pabbi hennar og kippti dálítið í eyrnasnepilinn á henni. »Mér fannst það hreint ekkert gaman að þurfa að fara hingað í strákafötum«, sagði Elsa undirleit. »En má ég- nú fá að heyra alla söguna«, sagði frú Ström, »Stígur minn góður er þá ekki guðsonur minn?« »Jú, frú Ström, en hin goða Elsa er ekki Stígur«. Frú Ström skellihló og hélt báðum hönd- unum utan um höfuðið. »Segðu mér nú allt saman, áður en ég geng alveg af göfl- unum«. Ström verksmiðjustjóri kom nú inn, og var honum skýrt frá málinu í fáum orð- um. Svo fór Elsa að segja alla söguna og var hálffeimin í fyrstu, en er verksmiðju- stjórinn fór að skellihlæja við tilhugsun- ina um Stíg í kjól ihjá Júlíu frænku, glaðn- aði einnig yfir Elsu, cg hún sagði nú skemmtilega frá því, þegar Margrét var í mesta ákafa að útbúa hana til ferðarinn- ar og lét fatnað Stígs ofan í töskuna hennar. »Veiztu nokkuð, hvernig Stíg vegnar?« spurði læknirinn. »Ég held, að hann slampist fram úr því«, svaraði Elsa á Stígs vísu. »Þegar hann skrifaði mér í gær, gekk allt stórvel, bara að hann eyðileggi ekki alla fallegu kjólana mína! Eg vona, að Gréta hafi ekki látið hann fá nýja ljósbláa kjólinn minn«, sagði hún hugsi. »Nú skai ég segja þér nokkuð«, sagði Bang læknir, »ég hafði ætlað mér að fara með þig til Kaupmannahafnar á morgun, en hér er veikur maður, sem ég varð að líta til í gær sökum þess, að læknirinn hérna er fjarverandi. Eg verð að bíða hér, þangað til hann kemur heim eftir tvo daga. Hvernig eigum við nú að fara með þorp- arann Stíg?« Eftir langar ráðagerðir urðu þau loks ásátt um, að Elsa skyldi fara inn til Kaup- mannahafnar daginn eftir í fötum Stígs, en hún mátti ekkert segja. »Mig langar til að sjá peyjann í þínum fötum«, sagði læknirinn, »og eins að sjá, hve skelkuð Júlía systir verður. Hún er ekkert gefin fyrir þess háttar grímuballs-rall! En þú verður að lofa mér því, Elsa, að þú þegir vandlega og segir Stíg ekki neitt, heyrirðu það!« »Hvernig geturðu efast. um það, þegar

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.