Ljósberinn - 01.01.1942, Blaðsíða 20

Ljósberinn - 01.01.1942, Blaðsíða 20
 18 LJOSBERINN j Kemur út einu sinni í mánuði, 20 síður, og auk þess jólablað, sem sent vero- ur skuldlausum kaupendum. Argangurinn kostar 5 krðnur. — Gjalddagi er 15. apríl. Sölulaun. eru 15% af .5—14 eint. og 20% af 15 eint. og þar yfir. ; Afgreiðsla: Bergstaðastrœti 27, Iieykjavík. Slmi 4200. | Utanáskrift: Ljósberinn, Pósthólf 304, Reykjavík. ! Prentsmiðja Jóns Helgasonar Bergst.str. 27. Góði hirðirinn. Frh. af bls. 3. og vafði henni sem hezt utan um lambið. Hann hirti ekki um, þó að hann nædcli sjálfan í gegn ef lambinu liði vel. Nú skall á náttmyrkrið, fann hann sér þá afdrep undir stórum steini. Hann var orðinn úr- vinda af þreytu og sofnaði — en daginn eftir fundu þeir hann örendan. Hann hafði frosið í hel, en lambið lifði í hlýju káp- unni hans; hann liafði látið lífið fyrir það. Sæll er sá maður, sem öðlast hefir speki, sá rnaður, sem hyggindi h,lotnast. Pví betra er að afla sér hennar en. að afia silfurs, og arðurinn af henni er ágætari en gull. * Því að Drottinn mun vera athvarf þitt og varðveita fót þinn, að hann verði eigi fanginn. Synja eigi góðs þeim, er þarfnast þess, ef það er á þínu valdi að gera það. * Brugga eigi illt gegn náunga þínum, þeg- ar hann býr iý-uggur hjá þér. Bölvun Drottins er yfir hösi hins óguð- lega, en bústað réttlátra blessar hann. Spottsama spottar h,ann, en lítillátum veitir, hann náð. (Orðskviðir). F ólgnir fjársjóðir biblínnnar I höll einni á Þýzkalandi er fornmenja- safn. Einn af þeim forngripum, sem ferða- menn girnast að sjá þar, er stóreflis járn- egg. Af þessu egg'i er sögð eftirfarandi saga: Þjóðhöfðingi einn trúlofaðist kóngídótt- ur; sendi hann henni þá þetta járnegg aö trúlofunargjöf. Kóngsdóttirin lét sér fátt um íinnast gjöf þessa og fleygði egg'inu á gólfið. En við fallið spratt upp fjöður á egginu og þá kom silfuregg í ljós innan í því. Kóngsdóttirin varð forviða og tók egg- ið upp og skoðaði það í krók og kring og fann þá á því leynifjöður. Þegar hún þrýsti á fjöðrina spratt silfureggið upp, og lá þá' gullegg innan í því. En gulieggið var líka með fjöður, og innan í gullegginu lá hænuungi, þegar kóngsdóttir þrýsti á annan væng kjúkl- ingsins, laukst hann líka upp og lá þá inn- an í honum snotur og lítil gull-kóróna sett dýrum steinum. En þetta var ekki alt og sumt. Kóngs- dóttirin fann enn fjöður, sem hún þrýsti á, og rann þá út hringur settur geislandi demanti. Þetta var þá hin undarlega trú- lofunargjöf furstans til kóngsdótturinnar. Biblían er að sínu leyti eins og þetta járnegg. Margir varpa henni frá sér og segja: »Við skiljum hana ekki«. En þeir, sem leita í heilagri ritningu, finna í henni fólgna dýrgripi. Því meira sem leitað er, því fleiri l'jaðrir spretta upp, og þá finn- um við hverja dýrindisperluna eftir aðra. B. J. Póstkröfur verða nú sendar þeim, sem ógreidd eiga blaðgjöld fyrir eitt eða fleiri ár. — Látið ekki dragast að utleysa kröfurnar.

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.