Ljósberinn - 01.12.1944, Blaðsíða 18

Ljósberinn - 01.12.1944, Blaðsíða 18
182 LJÓSBERINN Þegar þetta kom fyrix-, var afi þar gest' komandi. Hann tók þá Steina á hné sér og ræddi lengi við liann, og sagði að liann skyldi fá annað leikfang í staðinn fyrir trumbuna, sem ekki væri mömmu hans til ama. Þó að hann væri lítill drengur, yrði Iiann að taka tillit til annarra, og ekki hugsa eingöngu um sína eigin á- nægju, hafði afi sagt. Og frá þeirri stundu liafði Steina jafnvel þótt enn vænna um mömmu og afa en áður. Það spillti held- ur ekki um, er afi gaf honum lítinn bál með seglum, er liægt var að sigla á þvotta- bala inni og á bæjarlæknum úti, fyrir neðan trjágarðinn. Þá var Steini veru- lega upp með sér og ánægður yfir því, að nú þurfti mömmu ekki að verða illt í höfðinu hans vegna. Nú var Steini oi'ðinn stærðar drengui', þrettán ára að aldri, og yngri systkini hans voru þau Gunnhildur, Sveinn, Eí- ríkur og svo Jonni litli, aðeins sex ára. Hann hafði alltaf verið lítill og veiklu- legur. Þau stóðu öll fimm á dyraþrepunum þegar afi kom. Jonni litli var Jiálf feim- inn við afa fyrst, en þeir urðu brátt mestu mátar. Þið megið geta næri-i, að það varð ekki neinn smávegis fögnuður hjá böi-nunum daginn eftir, þegar setið var að morgun- vei-ði og afi sagði þeim, að öll börnin skyldu koma inn til lians klukkan tólf, til þess að ráðgast um livað þau langaðí mest til að fá í jólagjöf frá lionum. En það mætti þó ekki vera annað en það, sem honum væri mögulegt að veita þeim. Þess vegna áskildi hann sér rétt til þess að verða við óskum þeirra eða hafna þeim. Þau höfðu nær þriggja stunda umliugs- unarfrest og liófust nxi ákafar umræður inni í barnahei’berginu um þetta xnál. Steini óskaði sér reiðliests, en Dóra gamla, barnfósti'an þeirra, fullyrti að afi hefði ekki efni á að kaupa slíkt og þvílíkt. Hann varð þá að liugsa sér eitthvað annað. En það var skiljanlega all örðugt að kornast a ðniðurstöðu um einn lilut, þegai' óskiin- ar voru margar.Unglingunum þai’na í barnaliei-berginu fannst líka tíminn vera lengi að líða, nema Jonna litla, sem sat ofur kyrrlátur við borðið, út af fyrir sig, og skoðaði biblíumyndir. I;oksins opnaði afi dyrnar og langþráða stundin var runnin upp. Steini hafði sætt sig við, eftir mikil heilabrot, að óska sér nýútkominnar drengjabókar, og af því að afi vissi að það var góð bók, fékk hann loforð um að fá liana. Þá kom röðin að Gunnhildi. Hana hafði lengi langað til að eignast fallegt kven- veski, en vegna þess að pabbi og mamma höfðu í mörg horn að líta hvað útgjöhl- in snerti, þá lxafði hún orðið að láta sér nægja gamla vaxdúksveskið sitt. Nú lof- aði afi að verða við ósk liennar. Svenni var órabelgur fjölskyldunnar. Honum varð það einatt a, að x-ífa bux- urnar sínar þegar liahn var að riðla á húsþökum eða klifra yfir garða og girð- ingar. En liann sá ávalt eftir því eftir á og bað þá mömmu og Dóru gömlu um að fyrirgefa sér það. Hann lifði í sífelldum draumaheimi um alskonar æfintýri og fjaxlæg lönd, og þegar mamma og pabbi söfnuðu börnunum saxnan og ræddu við þau um kristniboðið, eða sögðu þeim frá ýmsum max-kverðum og undursamlegum

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.