Ljósberinn - 01.02.1948, Síða 4
20
LJÖSBERINN
staðar við ísskrúfað fljótið, sagði Tómas:
„Nú gerum við tilraun“.
Með það sama lét hann rennireiðar-
blístruna senda gjallandi hljóð hvert á
fætur öðru, stutt og löng á víxl, í einni
röð og endurtók þau aftur og aftur. Ibú-
ar bæjarins, sem farið höfðu með, hristii
höfuðin. Nú var þessi merkilegi dreng-
ur, Tómas, sem allt af var að gera til-
raunir með efnafræði og eðlisfræði, víst
alveg af göflunum genginn. En Tómas
var hreint ógeggjaður. Lagið, sem hann
lét blístruna hvína, var ætlað Morse-staf-
rófinu svo nefnda, því að livert stutt hljóð
gilti punkt í stafrófinu, en hvert langt
hljóð strik og á þenna hátt spurði hann í
sífellu: „Halló, Sarnis, heyrir þú til mín!“
Svona kvað við þessi blísturshljómleik-
ur stund eftir stund. Loks fundu nokkr-
ir símamenn á fljótsbakkanum við Sarnis,
hvað þetta ætti að þýða. Þeir óku fram
rennireið, og svöruðu. Sambandið var
komið á milli þessara tveggja staða. Nú
þurfti ekki aðeins við símskeytis lyfsal-
ans, — sem betur fór hafði enginn fengið
dropa af hinu banvæna meðali. En það
voru líka send mörg önnur mikilvæg sím-
skeýti með gufublístrunni og Tómas
heiðraður fyrir uppfindingasemi sína.
Þetta átti ekki að vera í eina skiptið,
sem blaðadrengurinn Thomas Alva Edi-
son fyndi eitthvað upp. Honum eigum
við að þakka glóðarlampann, liljóðritann,
smáfóninn og margar aðrar nytsamar upp-
findingar.
Nú á þessu ári eru 101 ár liðin síðan
hann fæddist 11. febrúar 1847 og lians
er minnst út um allan heim. Hann dó fyr-
ir 16 árum, 18. okt. 1931, heiðraður sem
mesti uppfindingamaður heimsins.
Bænarsálmur
Ó, GuS, í Ijóssins löndum,
ég lyfti til þín höndum,
þig einn ég treysti á;
ef þú ei kvak mitt þægir,
ef þú í hlé þig drœgir,
hvert gœti’ eg, faSir, flúifi þá.
En fyrr en ég dró anda
minn allan sáslu vanda
og sendir soninn þinn
og lézt hann lífsstríS heyja,
þú lézt hann fyrir mig deyja,
afi sál mín hlyti himininn.
Hans forsjá er ég falinn,
liann fyrir mig var kvalinn,
hcms nafn er náSarlind,
hans blessað blófiifi rauSa,
mér bjargar eitt frá daiifia,
þaS leysir mig frá sekt og synd.
Ö, Jesú, ég vil trúa!
ó, ég vil lijá þér búa
og þiggja kraft frá þér;
Þú getur gert mig ríkan,
mig gert þér sjálfan líkan.
Ó. hra&a þér aS hjálpa mér!
Þig, hirfii hjarSar þinnar
og höfund trúarinnar,
ég m.æni alltaf á.
MeS þér er sælt dö þreyja.
Án þín ég lilyti aS (leyjct.
Ó. sefi þú hjartans himinþrá.
B. J.