Ljósberinn - 01.09.1954, Blaðsíða 6

Ljósberinn - 01.09.1954, Blaðsíða 6
7» LJ ÓSBERINN fingurinn staðnæmdist við ákveðinn stað og------ Óli stóð á fætur og byi'jaði að tala. Dreng- irnir horfðu dauðskelkaðir á hann, og kenn- arinn gekk til hans og settist á boi'ðröndina. Það var ekki Fi’iðrik, sem hafði brotizt inn hjá kaupmanninum, og ekki heldur hann, sem hafði gjört tilraunir til þess. Óli sagði, að hægt væri að sjá það í bókinni sinni. Óla rak í vörðurnar, og hann stamaði, en þegar hann sá hið rólega augnaráð kennai'ans hvíla á sér, kom dálítið af hugrekki hans aftur. Já, þarna stóð það: „29. apríl. f skóla all- an daginn. Rigning". Og nú kom þetta: „Kjall- arahlerinn hjá kaupmanninum eyðilagður. Innbrot?“ Og þegar lesið var lengra stóð: „Friðrik kom úr heimsókn frá móðursystur sinni“. Friðrik gat ekki hafa gei't illt af sér, þegar hann var ekki heima. Og aftar í bókinni stóð þetta: „6. maí. Skóli fyrir hádegi. Rúða eyðilögð hjá kaup- manninum; honum tilkynnt um það“. Já, svo sannarlega stóð þarna dálítið, sem ekki var hægt að bera á móti. Kennarinn var orðinn býsna rjóður í framan. Og hvað var það þá? — 6. maí var Fi'iðrik farinn að vinna annars staðai', svo að í það skiptið hlaut hann að vera saklaus, — nema hann hefði verið heima þá nótt, en það gæti lögreglan kom- izt á snoðir um. Nei, hann hafði ekki verið heima þá — aldeilis ekki! Óli var orðinn æstur. Hann fann, að allir horfðu á hann. — Því að daginn eftir stóð: „Ég lék mér við Friðrik um kvöldið". Það gat ekki verið, að hann hefði verið heima tvö kvöld í röð. Húsbóndi hans gæti skýrt frá því. Allt í einu reis kennarinn á fætur. — Komdu, sagði hann og greip í handlegg- inn á Óla, nú förum við til lögreglunnar. Og áður en bekkinn vai'ði, voru þeir komnir út úr dyrunum. Stóra-Sigga, sem setið hafði höggdofa og hlustað á það, sem fram fór, hneigði nú höf- uðið fram á boi'ðið og grét. Það, sem gei'ðist á skrifstofu kaupmanns- ins næsta hálftímann, fannst Óla vera sem fallegur draumur. Lögregluþjónninn hafði rannsákað bókina hans og sagt, að þeir væru neyddir til að sýkna Friðrik og komast á nýja slóð. Þegar skólanum lauk, sá kenn- ai'inn, að Óli og Sigga urðu samferða heim til hennar. Óli varð undr'andi, þegar það rann upp fyrir honum, að allt snerist um hann. Daginn eftir sýndi kennaiinn bekknum þessa merkilegu, litlu bók, sem hafði svo mikið að segja í þessu leiðinlega máli. Þetta var dagbók, sem Óli hélt. Það var góð hugmynd, sem hann hafði fengið þar, hvaðan svo sem hann hafði fengið hana. Það væri alltaf gaman síðar, að líta aftur yfir liðna æfi. Stundum gat hún einnig orðið til gagns, eins og þeir hefðu nú fengið að sjá. Strax daginn eftir fóru drengirnir að koma með vasabækur í skólann, og ekki leið á löngu, áður en allir drengirnir reigsuðu um með vasabók upp úr brjóstvasanum. Stund- um var þar líka litaður blýantur. Það lék mjög mikill vafi á því, hvort þeir héldu dag- bók. Að minnsta kosti var kennarinn mjög' efins um það. En nú snerist allt um Óla. Vasabókin tók bæði bolta og skopparakringlu fram, og drengirnir gerðu ekki lengur gys að Óla fyrir feimni hans og fyrir það, að hann bæri alltaf á sér bækur. Skömmu seinna var hinn rétti þjófur tek- inn. Það var ungur maður úr nágrenninu, og hann var tekinn, þegar hann ætlaði aftur að reyna að brjótast inn. Og þegar nági'anninn, sem hafði saknað smápeninganna, kom loks- ins og játaði, að sonur hans hefði tekið þá af diskagrindinni, skein sólin aftur heitt inn í litla heimilið við mýrarjaðarinn. (t,-------------------------------------<*, HllÉF ASI4IPTI Grétar Jón Guðmundsson, Brekkuvelli, Barðaströnd, pr. Haukaberg, óskar eftir bréfasambandi við pilt eða stúlku á aldrin- um 12—15 ára einhvers staðar á landinu. Sverrir Guðmundsson, sama stað, óskar eftir bréfasamband við pill eða stúlku á aldrinum 15—18 ára einhvers staðar á land- inu. Brynhildur Nanna Guðmundsdóttir, sama stað, óskar eftir bréfasambandi við stúlku á aldrinum 9 12 ára einhvers staðar á land- inu. Guðríður Guðmundsdóttir, sama stað, ósk- ar eftir bréfasambandi við pilt eða stúlku á aldrinum 8—10 ára einhvers staðar í land- inu. i-----------------------;--------->-----

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.