Ljósberinn - 01.09.1954, Blaðsíða 7

Ljósberinn - 01.09.1954, Blaðsíða 7
ljqsberinn 79 Þegar handritin Allir kannast við fjallið Sínaí, sem Guð birtist Móse á forðum. Undir Sínaífjalli stend- ur nú klaustur, sem stundum er kallað Sínaí- klaustur, en er annars kennt við heilaga Katrínu. í maímánuði 1844 kom mikill, þýzkur fræðimaður í heimsókn í klaustur þetta. Hann hét Tischendorf og vann að því að leita uppi og rannsaka gömul handrit af Biblíunni. í klaustrinu sá hann stóra körfu fulla af göml- um, skrifuðum pergament blöðum. Safnvörð- urinn sagði honum, að þetta væri notað sem eldiviður, og væri þegar búið að brenna miklu af slíkum blöðum. Tischendorf tók að athuga blöðin nánar og sá þá sér til mikillar undrunar, að þetta voru blöð úr gamalli, grískri þýðingu af Gamla testamentinu, sem kölluð hefur verið Sjötíu- manna-þýðingin (Septuaginta). Þetta voru með öðrum orðum elztu handrit, sem hann hafði nokkurn tíma séð. Fræðimaðurinn vildi fá að taka þessi blöð með sér, en það var ekki við það komandi, að hann fengi meira en um það bil þriðjunginn úr körfunni eða rúmar fjörutíu arkir. Hann lét í ljósi svo mik- inn fögnuð yfir fundinum og áfergju í að eign- ast blöðin, að munkana fór að gruna, að þau væru meira virði en þeir höfðu haft hug- mynd um. Tischendorf fór nú með feng sinn heim til Þýzkalands og vakti alheims athygli, er hann skýroi frá hinum merka handritafundi. Hann gætti þess þó vandlega að láta ekkert uppi um það, hvar hann hafði fundið þetta, því að hann gerði sér vonir um, að geta farið aftur seinna og náð í meira. Ýmsir gerðu þó tilraunir til að leita á þeim slóðum, sem Tischendorf hafði leitað á, en árangurslust. Tischendorf reyndi líka að beita fyrir sig áhrifamönnum við egyptsku hirðina, en allt kom fyrir ekki. Munkarnir voru þögulir sem gröfin og vildu ekkert láta af hendi. Árið 1853 fór hann sjálfur aftur til Sínaí, nbuunnar .v.v.v.v.v.y.v.v.v.v.v fundust á Sínaí en tókst ekki að hafa uppi á meiru en einu blaði úr fyrstu Mósebók. Fimmtán árum síðar fór Tischendorf enn til Sínaí og hafði nú með sér meðmæli Rússa- keisara, en klaustrið var grískt-kaþólskt. Enn bar leitin engan árangur, og Tischendorf var í þann veginn að yfirgefa klaustrið. Þá bauð ráðsmaður klaustursins honum inn í klefa sinn og bar fram fyrir hann veitingar. — Ég hefi líka lesið eintak af Sjötíu- manna-þýðingunni, sagði ráðsmaðurinn upp úr þurru. Því næst tók hann fram stóran böggul, vaf- inn inn í rautt klæði, og lagði hann á borðið. Tischendorf tók umbúðirnar utan af bögglin- um og fann sér til mikillar undrunar mörg blöð úr Gamla testamentinu og allt Nýja testamentið. Tischendorf varð fi'á sér numinn. En í þetta skipti hafði hann taumhald á tilfinningum sínum og lét ekki á neinu bera. Hann bað aðeins um leyfi til að fá að líta ofurlítið nánar á bókina inni í klefa sínum. — Og þar, segir hann sjálfur frá, gaf ég tilfinningum mínum lausan tauminn. Ég vissi, að ég hélt á dýrmætasta handriti Biblíunn- ar, sem enn var þekkt. Nú hófust miklir samningar, og loks tókst með aðstoð keisarans að fá þetta dýrmæta handi’it flutt til Rússlands. Var því komið fyrir í bókasafni keisarans í Pétursborg. Þetta handrit hefur verið nefnt Sínaíhand- ritið, eftir staðnum, sem það fannst á, og er eitt af þremur dýrmætustu handritum Bibli- unnar, sem til er. Það mun hafa verið skrifað á fjórðu öld eftir Krist. Nú var nafn Tischendorl' á alli'a vörum. Hann var virtur og dáður. Einn fræðimaðui komst svo að orði: — Ég vildi heldur liafa fundið Sínaíhand- ritið en eiga dýrmætasta demant Bretdrottn- ingar. Sínaíhandritið vai' síðan geyrnt í Péturs-

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.