Ljósberinn - 01.12.1954, Page 21
LJDSBERINN
129
gamla. Guð á alla hluti í öll-
um heiminum, og nýi kristni-
boðinn sagði, að hvað, sem við
bæðum um, það fengjum við.
ef við aðeins þyrftum þess með
og treystum honum alveg.
Þegar forstöðukonan fann hið
barnslega traust Su Ling, hætti
hún alveg við að segja það.
sem hún var komin til að segja.
Kristniboðarnir báðu mikið
fyrir Su Ling tímann, sem eft-
ir var til jóla. Von þeirra
minnkaði þó meir og meir eft-
ir því, sem nær dró jólum.
Su Ling lék aftur á móti við
hvern sinn fingur og varð stöð-
ugt sannfærðari. Hvað voru
288 gjafir fyrir þann, sem átti
óteljandi grúa af stjörnum og
auk þess bæði sól og tungl.
Jólin voru komin. Kristni-
boðarnir og aðstoðarfólkið
höfðu sezt meðal barnanna. Von
þeirra vegna Su Ling hafði sízt
aukizt.
Fröken Fraser sá um útbýt-
ingu jólagjafanna. Hún rétti
hverjum sinn böggul. Röðin
kom að Su Ling. Hún fékk
auðsjáanlega brúðuna, sem
kristniboðsvinir í Ameríku
höfðu sent.
— Hér er áreiðanlega falleg
gjöf til þín, Su Ling, sagði
fröken Fraser eins glaðlega og
henni var unnt. Það voru tár
kenna barmnu við fyrsta tækifæri að biðja
öðru vísi. Þetta mátti ekki koma fyrir aftur.
Su Ling settist aftur í sæti sitt. Hún athug-
aði fyrst utanáskriftina á bögglinum. —
Síðan leysti hún gætilega fallega rauða borð-
ann utan af, vatt hann saman og stakk hon-
um í vasa sinn. Þá tók hún jólapappírinn
utan af, og pappaaskja kom í ljós. Fyrst braut
hún marglita pappírinn vandlega saman og
stakk honum einnig í vasa sinn. Nú lyfti hún
lokinu af öskjunni og gægðist undir það.
Undrunar- og fagnaðaróp brauzt fram á
í augum forstöðukonunnar, þegar hún rétti
Su Ling böggulinn. Hún hugsaði sem svo,
að ein brúða gæti ekki komið í stað þessara
gjafa, sem Su Ling vænti að fá.
Su Ling þakkaði fyrir sig, en horfði um
leið með eftirvæntingarsvip á bögglana, sem
enn voru undir jólatrénu. Það hafði ekki
vaknað hinn minnsti efi í hjarta hennar um,
að gjafirnar væru ekki þar.
Tvö stór tár runnu niður kinnarnar á
fröken Fraser og féllu niður á næsta böggul,
sem hún rétti. Hún ákvað með sjálfri sér að