Ljósberinn


Ljósberinn - 21.02.1925, Blaðsíða 4

Ljósberinn - 21.02.1925, Blaðsíða 4
52 LJÓSBERINN ykkur. Alt, sem við gerum það sér hann, og alt, sem við tölum heyrir hann. ----o---- Víðimýrarkirkja. Hérna sjáið þið, börn, mynd af gamalli sveita- kirkju. það er t o r f k i r k j a. Veggir eru hlaðnir úi' torfi og grjóti og þakið er úr torfi. Ykkur mun ekki finnast þetta veglegt Guðshús. En sjálfsagt hefir hún þótt snoturt hús á sínum tíma. Sveitafólkið þekti þá varla annað en torfbæi með grasigrónum þekjum. það hneykslaðist því ekki á því, þó að kirkjurnar væru með sama sniði hið ytra, eins og bæirnir. þá voru engir ofnar í kirkjum fremur en í bæjunum. En torfþakíð og veggirnir hlúðu að, svo að aldrei var eins kalt í þessum hús- um eins og nú er í ofnlausum timburhúsum. Kirkjan er ofur fátækleg og hrörleg á að líta að utan, það er aldrei nema satt. En þrátt fyrir það, var hún heilagur staður. þangað voru börn borin til skírnar og þar voru þau fermd á -hátíðleg- um degi, og þar gengu þau til altaris og þangað komu þau síðan á æskuskeiði og fullorðinsárunum og síðast á elliárum. þar var flutt orð Guðs á helg- um dögum, þar voru bænir beðnar og sálmar sungn- ir Drotni til dýrðar og hreldum mönnum til hugg- unar og vonglöðum æskumönnum til fagnaðarauka. þar steig presturinn í stólinn og bað og las upp heilög sagnamál og himnesk birta skein í hverri sál,

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.