Ljósberinn


Ljósberinn - 14.03.1925, Blaðsíða 3

Ljósberinn - 14.03.1925, Blaðsíða 3
LJÓSBERINN 75 gleymdi hann heili’æði föður síns. Einu sinni var hann á hafi úti og var vökumaður á skipi. Hann datt fyrir borð, en af því að hann var syndur sem selur, gat hann haldið sér lengi uppi. En hann var nú samt hræddur við hákarlana, sem voru að sveima kringum hann þar; en þá kom honum í hug heilræði föður síns. „Eg hugsaði til Daníels í ljónagryfjunni“, sagði hann, „eg mintist þess, að Guð lokaði munni ljón- anna, og svo bað eg hann að loka gini hákarlanna“. Og Guð heyrði bæn svarta drengsins. Hákarlarnir léku sér í kringum hann, en gerðu honum ekkert mein. Seinna var skotið út báti til að sækja hann, og honum var bjargað. Já, satt er það, börn: Hollur er sá, sem hlífir. „Eitthvað þeim til líknar legst, sem ljúfur Guð vill hjálpa“. ----O---- Blóm f stað þistla. Abraham Lincoln forseti sagði einu sinni: „Eg óska þess, þegar eg dey, að þá megi verða sagt af þeim, sem þektu mig bezt, að eg hafi altaf kipt upp þistli og plantað blóm þar sem eg hugði að blóm mundu spretta". En hvað heimurinn yrði þá miklu betri ef við tækj- um okkur öll til og gerðum eins og Lincoln: plönt- uðum blóm í staðinn fyrir stingandi þistil. Tækifæri til þess gefst oss á hverjum degi sem vér lifum.

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.