Ljósberinn


Ljósberinn - 14.03.1925, Side 7

Ljósberinn - 14.03.1925, Side 7
LJÖSBEIIINN 79 Það var eins og hann með því vildi taka þau orðin upp aftur, sem hann sagði við mig: „Eg skal aldrei gleyma því að rétta þeim næsta“. það væri óskandi, að allir litlir drengir og litlar stúlkui' vildu keppast á um það að rétta þeim næsta allar þær vingjafir og ástgjafir, sem þeim eru gefn- ar. þar á móti ættu þau aldrei að rétta þeim næsta neina þá mótgerð, sem þau kunna að verða fyrir i orði eða verki. Ef þau vilja með sönnu heita böm Guðs, þá ættu þau að minsta kosti að fara eins með mótgerðir ann- ara og Guð fer með syndir þeirra, þegar þau koma með þær til hans, eins og týndi sonurinn. Og hvað gerir Guð þá, himneski faðirinn: H a n n m i n n i s t þ e i r r a a 1 d r e i f r a m a r. ----o---- Sannleikurinn og Lýgin. þau fóru einu sinni bæði að baða sig í sama vatni. Meðan Sannleikurinn var niðri í vatninu, laumað- ist Lygin upp á bakkann, fór í föt Sannleikans og hljóp leiðar sinnar. þegar Sannleikurinn kom upp úr baðinu og sá, hvað Lygin hafði aðhafst, varð hann hryggur og' mælti: „Æ, nú verð eg að ganga nakinn um heim- inn, því eftirlátnar flýkur Lyginnar vil eg ekki nota“. Og síðan hefir Sannleikurinn orðið að ganga nak- inn, en Lygin jafnan skreytt sig búningi hans.

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.