Ljósberinn


Ljósberinn - 30.12.1933, Qupperneq 4

Ljósberinn - 30.12.1933, Qupperneq 4
392 LJÖSBERINN Sacja eftir Guukúnu Cátusdotiuc v*4ui jyv,r^— „^Ljostcrann* Hanarnir voru búnir að gala góða stund, þegar gesturinn í súðarherberg- inu losaði svefninn. Ömurinn af hana- galinu hafði borist inn í drauma henn- ar, og endurvakið liðnar bernskustund- ir, sem enn voru geymdar í hugskoti hennar. Hana fór að dreyma litla stúlku, sem hljóp tindilfætt um tún og engjar og las fögur ilmandi blóm, sem hún bar inn til mömmu sinnar og prýddi með litlu stofuna hennar. Þegar hún vaknaði til fulls, vissi hún að.vísu að þetta var aðeins draumur, en svo raunverulegur var hann, að hún átti bágt með að útrýma honum úr með- vitúnd sinni. Hún reis upp í rúminu og leit út um gluggann, fyrir aftan höfðalagið á rúm- inu, sem hún svaf í. Dýrð morgunsins blasti við hvarvetna. Sólargeislarnir þerruðu tárin sem nótt- in hafði felt, og vafði vermandi mund sína um hauður og haf. Hressandi morg- unblær blandaður sjávarseltu og fersk- um viðarilmi úr reykháfum húsanna í kring; barst beint inn um opinn glugg- ann, og rak burt allra seinustu leifar svefndrungans. Hún fór að klæða sig. Ferðakjólnum kom hún fyrir á fatasnögunum í horn- inu, á bak við röndótta fatahengið, og klæddi sig í svartan kjól með hvítan silkikraga, sem fór einkar vel við dökt hár hennar og hörund. Hún fór sér hægt og virtist helst hafa það í huga að snyrta búning sinn eft- ir föngum og fegra útlit sitt sem bezt. Spegilinn spurði hún til ráða, jafnt og þétt, og er hún hafði fullnægt kröfum hans, til hins ýtrasta, gekk hún ofan í veitingastofu gistihússins. Hún hélt á svörtu yfirhöfninni á hand- leggnum, hatturinn sat á ská, yfir vinstri vanganum, og féllu dökkjarpir lokkar yfir hægra eyrað og huldi því nær háls og herðar. Nokkrir karlmenn sátu hjá borðinu í matstofunni og spjölluðu saman. Þeir þögnuðu er hún kom inn, léttstíg og hljóð. Þeir litu hver á annan, og í aug- um þeirra allra bjó sama spurningin: Ilver er þessi kona? Hún beygði höfuðið hæversklega og bauð þeim góðan daginn og spurði því næst: »Er það hér, sem menn matast?« »Já, þetta er matstofan,« svöruðu pilt- arnir. »Og ef þér viljið biðja um eitt- hvað er ekki annað en að hringja bjöll- unni þarna.« »Ö, þakka yður fyrir!« sagði hún og' brosti til þeirra. Þórunn, gestgjafakonan kom að vörmu spori, er hún hringdi, og var, að svo miklu leyti sem unnt var, ennþá rjóðari, brosleitari og breiðleitari en kveldinu áður. »Eruð þér virkilega komin á fætur svona snemma!« sagði hún undrandi, — »Gátuð þér ekki sofið? - Þér hafið kannske vaknað við hanagalið? —- Því

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.