Nýtt kirkjublað - 17.12.1906, Blaðsíða 7
NÝTT KÍRKJtÍBLA©.
271
Sb'ng-vakver
lítið hefir verið gefið út i Winnipeg árið sera leið, að tilhlutun
ins ev. lút. kirkjufélags ísJendinga í Y. heimi, handa bandalögunum og
sunnudagaskðlunum. Sálmar þessir og söngvar eru 147 að tölu, flest-
ir andlegs efnis. Síra Valdimar Briem á þriðjunginn, og er mikið úr
Barnasálmum lmns. Ættjarðarkvæðin eru jafnmörg á enskri og ís-
enzkri tungu. Augun rekur maður i það, að ekkert er þar eftir besta
skáldið þeirra vestan hafs, Stephan G. Stephansson, en auðvitað er
kverið ekki sýnishoimabók, hafa sönglögin ráðið meiru um valið. Banda-
lagssöngvar heitir kverið á máli þeirra vestanmanna, og er það snot-
urt og eigulegt.
Biblíuþýðingin nýja.
Þess var getið í júníblaðinu öðru að byrjað yrði á prentun
Nýja testamentisins, og mundi það verða fullprentað að haust-
inu. Af ýmsum ástæðum hefir prentunin dregist lengur en við
var búist og verður vart lokið fyr en undir vorið. TJpplag
5000. Bókin verður bundin hér á landi. Brezka biblíufélagið á
útgáfuna.
Lausn frá prestsskap,
án eftirlauna helir síra Jes. A. Gíslason í Mýrdalsþingum fengið frá
næstkomandi fardögum; tekur lmnn verzlun fyrir, að því er mælt er.
Laust prestakall
Mýrdalsþing: Höfðabrekku, Rcynis og Skeiðflatarsóknir. Kr. 1318,
22. Veitist frá næstu fardögum. Uppgjufaprestur fær af bruuðinu kr.
118. 22.
Síra Ingvar Nikulásson,
sem síðast var prestur í Gaulverjabæ, en varð að láta af
prestskap sakir vanheilsu, sækir nú um Skeggjastaði í Norður-
Múlasýslu, og er mjög vel farið að heilsa hans hamlar honum
eigi lengur að vera við prestþjónustu, . og í annan stað er hin
mesta nauðsyn að fá prest að Skeggjastöðum, þar sem heita má
ófært að þjóna því prestakalli, hvort heldur er frá Hofi í Vopna-
firði eða Sauðanesi.
Prestvígsla.
Gleymst hefir að geta þess liér í blaðinu, að cand. theol.
Sigurður Guðmundsson var prestvígður 23. sept. til aðstoðar síra
Helga Árnasyni í Ólafsvík.
Tll Iieilsubótar
eru velrorlangt erlendis þeir slra Guðm. Helgason í Reykjaholti
og sira Jon N. Johannesen á Sandfclli.