Nýtt kirkjublað - 08.01.1907, Blaðsíða 5

Nýtt kirkjublað - 08.01.1907, Blaðsíða 5
NÝTT KIRKJUBLAÐ HÁLFSMÁNAÐARRIT FYRIR KRISTINDÓM OG KRISTILEGA MENNING 1907. Reykjavik, 8. janúar blað ijá eg síend við huröina og drep á dgr. (Opinberunarb. 3, 20.) Niðurl. prédikunar, er Haraldur kand. Nielsson flutti í frikirkju Reykjavikur á gamlárskveld 1906. gapEGAR gamla árið kveður, kemur nýtt ár, nýr náðar- tími frá guði. Það hrópar fyrst og fremst til vor: Nú er nýtt færi til þess að nota tímann vel. Þú hefir ef til vill enn ekki gætt þcss, að náð guðs er altaf að bíða eftir þér. Orðin þessi, sem ég liefi tilfært úr Opinberunar- bók Jóhannesar, eiga þar eiginlega við Jesúm sjálfan, um andlega komu hans til safnaðarins í Laódíkeu. En Jesús Kristur hefir opinberað oss kærleika guðs, og sjálfur er hann í huga vorum ímynd guðs náðar. A árinu mjja hrópar þessi náð til þín: sjá, eg stend við hurðina og drep á dyr. Ætlarðu ekki að ljúka upp fyrir henni nú, ef þú hefir elcki gjört það áður? Eiginlega hefir hún drepið á dyr þín- ar mörgum, mörgum sinnum áður, þótt þú hafir ekki heyrt það. Á mestu gleðistundum lífs þíns hefir hún staðið hljóð fyrir utan — náð guðs hefir ávalt hljótt um sig — og sagt: „Hleyptu mér nú inn; taktu nú á móti mér. Láttu nú lán þitt og gæfu leiða þig til guðs. Snúðu nú gleði þinni upp í þakklæti til hinmaföðursins, þá verðurðu sæll. Og mundu svo eftir sál þinni, hún þarf guðs náðar með; hún og ég þurfum að hittast“. En vanalegast hefir glaumkætin verið svo hávær kringum oss á gæfustundum lífs vors, að vér höf- um eigi heyrt, að náð guðs var að drepa á dyr. Þess vegna,

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.