Nýtt kirkjublað - 08.01.1907, Qupperneq 16

Nýtt kirkjublað - 08.01.1907, Qupperneq 16
12 NÝTT KIRKJUBLAÐ. hennar og tungu á svo margan veg til ills og góðs. Ýmsir liafa líka orðið til þess að gefa því máli gaum og hafa rétti- lega vandað um það, að hin síðari árin hafa hreiðst út á meðal almennings skáldsögurit, sem vegna efnis og búnings ættu alls eigi að vera í húsum hæf. Nú síðast hefir Benedikt bóndi Bjarnarson i Garði í Kelduhverfi ritað um það mál í 4. hefti Skírnis 1906, og Iieitir greinin „Nokkur orð um bókmentir vorar“. Vandlæt- ingarorð hans stefna fyrst að blöðunum. Þau vilja geðjast almenningi með þvi að flytja sögur neðanmáls eða í fylgirit- um, en „mikill meiri hluti er einskisvert rusl og sumt verra en einskisvert, alveg gersneytt öllum skáldskap og fegurð, fjarri öllum sálfræðislegum sanni, og það sem verst er af öllu, þýtt og gefið út, margt af því, á slíku hrogna- máli, að annað eins getur nálega hvergi í öðrum bókment- um vorum“. Höf. verður einna skrafdrjúgast um blöðin, hann er vísast full-harðorður í þeirra garð, óskilið mál eiga þau auðvitað ekki hjá honum, en ályktarorðin eru þau hjá honmn, að gullkornin séu hverfandi fá í samanburði við alt ruslið sem þau hafa flutt. Höf. minnist svo nokkuð á bækurnar sem hinir og þess- ir eru farnir að þýða og gefa úf, „skrílbækurnar“, sem hann nefnir svo. Sennilega hefir honum þó eigi verið til fulls kunnugt um það, hve mjög það virðist fara í vöxt að rubba upp slíkum þýðingarskrípum í því trausti að lesgjörn alþýða kaupi. Oefað stendur tungu vorri og smekkvísi og siðmenn- ing enn meiri hætta af þeim ófögnuði, en blaðasögunum, þótt lélegar séu margar hverjar. Höf. gerir sér von um það, að alþýða manna hér á landi sé svo vel viti borin og svo upplýst, að útlendar skrilbækur eigi ekki við hennar hæfi, og hún muni ])ví hrinda þessu af sér, og ])á sé sjálfíalliii niður slík bókagerð, og víst er um það, að svo framarlega sem menn hafa nærzt á brjósta- mjólk fornu bókmentanna vorra þá býður þeimviðþessu and- lega ómeti, en því miður eru þeir helzt til margir enn, sem ekki hafa notið þess fósturs. Það má vist eigi gera sér of- góðar vonir um að þetta lagist af sjálfu sér, það mun rétt að kannast við hilt, sem höf. segir á öðrum stað, að mikill

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.