Nýtt kirkjublað - 24.07.1907, Side 4

Nýtt kirkjublað - 24.07.1907, Side 4
164 NÝTT KIKRJUBLAÐ. mörgum mentuðum mönnum kristnum á vorum dögum. Vér getum ekki verið eins fastir í trúnni og forfeður vorir voru; þegar vér í bæninni áköllum föður vorn á bimnum, reki orsakalögmálið sífelt fram milli hans og vor kalda og dauða ásjónu sína. Þetta ætla ég, að byggist aðallega á misskilningi. Föðurnum, sem stendur við sjúkrabeð barnsins síns, sem alt bendir á að eigi skamt eftir og læknarnir bafa slept allri von um að lækna, verður ekki auðvelt að biðja með trú um líf barnsins síns. Þetta er fyllilega satt. En það var það ekki síður á dögum forfeðra vorra en vorum dögum. Trúin hefir ávalt vevið ekki aðeins hin mesta, heldur einnig hin erfiðasta íþrótt í lífinu, Það er þessi vantrú, sem vér allir berum menjar af í blóðinu, sem gægist fram milli guðs og vor, er vér biðjumst fyrir. Það liefir hún ávalt gjört. Að þetla andlit, nú fremur en áður, ber drætti orsakalögmáls- ins, skiftir hér minstu. Trúið á guð! segir Jesús Kristur. Og liann segir það ekki með orðum einum. OII persóna hans, alt líf hans hér á jörðu hrópar svo hárri röddu til mannanna. Hann segir í raun réttri ekki annað en þetta. Alt lútt leiðir .af því. En þessi trú hefir ávalt verið veik, bæði fyr og siðar. Mætti ég benda á nokkuð, sem getur styrkt liana ? Það er syndar-meðvitundin. Óviðurkend eða ónóglega viðurkend synd Jiggur eins og þoka milli guðs og vor, aftrar því, að vér getum biindlað hann í trúnni með þeim krafti og þeirri djörfung sem með þarf. Vér getum vel tilheyrt guði, ])ótt bæði syndar-meðvitund vor og friðþægingar-þörf sé mjög óljós og mjög veik, eins og átti sér stað með lærisveina Jesú sjálfs meðan hann umgekst hér á jörðu. Vér getum tilheyrt guði eins fyrir ]iað, ef vér aðeins einlæglega afneitun þeirri synd sem vér höfum viðurkent í fari voru, — afneitum og trúum. En vér getum ekki náð nema skamt, meðan svo er ástatt fyrir oss. Til þess að trú vor geti styrkzt verðum vér að öðlast fyllri þekkingu á synd vorri, bæði að því er snertir viðtæki hennar og þungvægi, fyllri þekkingu á því hve voðaleg hún er, svo að oss verði Ijóst, að hún verður ekki fyrii'gefin án friðþægingar. Vér verðum að fara hina nýju, lifandi leið til föðursins, sem sonurinn hefir helgað með blóði sínu. Þá mun

x

Nýtt kirkjublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.