Nýtt kirkjublað - 24.07.1907, Síða 6

Nýtt kirkjublað - 24.07.1907, Síða 6
166 NÝTT KIRKJUBLAÐ úrufræðinga ekki síður en aðra. Þeim er einmitt gefið liið tvíeggjaða, beitta sverð, lnð beittasta sem til er i heimi, til ]>ess að gjöra greinarmun á réttu og röngu, sönnu og ósönnu. Þeir ættu, að minsta kosti, að vera hér i verki með: að skera frá og hreinsa burt alt hið ranga og guðlausa í hugs- unarhætti vorra lima. Hér dugar ekki neitt trúarlegt valdboð; ]>að mundi reynast býsna atlvana. Hið eina sem hér dugir er einlæg visindaleg rannsókn á kristilegum grundvelli, sem er fús til að viðurkenna yfirsjónir hjá kristnum mönnum ekki siður en verðleika hjá hinum sem ekki eru það. Því verkefnið er mikið; að sýna fram á samræmi nátt- úruvísindanna við alla grundvallarhugsunina í ritningunni og hertaka einnig ])etta hugsana-svið undir hlýðni við Jesúm Krist. Og ekki þetta hugsana svið ejtt, lieldur alla mannlega hugsun, alt mannlegt andans iíf. „Gjörið Krist að konungi!" Þessi orð hafa oft verið endurtekið hér ])essa dagana*). Upphaflega var hugsunin sú að gjöra hann að konungi yfir öllum hinum heiðna heimi, sem enn þekkir hann ekki. Það er gott. Því næst var þessum orðum snúið við á ])á leið, að merking þeirra varð: Gjörið hann að konungi í hjörtum yðar hver og einn. Það er jafnvel enn betra. Og enn fengu þau merkinguna: Gjörið hann og að konungi í hjörtum félaga yðar og nánustu ná- unga. Það er líka vel til fallið þótt rétt sé jafnframt að minnast hinna gömlu orða: „Gjöristekki margir kennarar!“ En i þessum oröurn felst ennþá ein hugsun, sem fáum hefir dottið í hug: Gjörið hann að konungi í heimi hins andlega lífs, i heimi menningarlífsins. Sá heimur var eilt siun undir hann lagður. Eg segi ekki, að hann sé nú horfinn frá honum. En uppreisnarfáninn blaklir þar og honum er á lofti haldið af sterkum já n)jög sterkum höndum, Þar eru verkefni fyrir kristna stúdenta, háskólamentaða kristna menn öllum öðrum fremur. Eg vil benda á mann eins og Georg Brandes, sem í menningarheimi allra Norðurlanda þjóðanna hefir harist kröftuglega móti Jesú Kristi og orðið mikið ágengt. Hver gengur út á móti honum? Og úti í heiminum eru margir *) Ræða þessi var flutt ú norræua stúdentafundinum í Finnlundi í fyrra suniar.

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.