Nýtt kirkjublað - 20.08.1907, Qupperneq 4

Nýtt kirkjublað - 20.08.1907, Qupperneq 4
NÝTT KIRKJÚBLAÐ 172 styi-ks frá aðstandendum sínum eða sveitarfélagi og 61 af 462 stúlkum. Má ]>að heita furðu gott, enda ber ]>ess aö geta, að málleysingjarnir halda vel saman og gera mikið hverir fyrir aðra. llafa félög þeirra gert mikið til þess að manna þá, andlega og líkamlega; sérstök málleysingjablöð eru gefin út, sérstök fyrirlestra- og íþróttafélög eru til fyrir málleysingja, og margt er annað gert, sem hér yrði oílangt upp að telja. Gela má þess, að málleysingjafélögin áttu mestan þátt í þvf, að sérstakri kirkju fyrir málleysingja var komið upp í Kaupmannahöfn fyrir fáum árum, og er sér- stakur prestur við þá kirkju, launaður af ríkinu; gerir hann prestsverk fyrir málleysingja um alla Danmörku, auk þess sem hann sérstaklega þjónar málleysingjasöfnuðinum í Kaup- mannahöfn. Þess ber þó að geta, að málleysingjarnir njóta mik- illar styrktar frá kennurum sínum og öðrum hollvinum, sem gera mikið tilþessað leiðbeina oglétla undirmeðmálleysingjunum, eftir að þeii- eru farnir burt af s-kólunum, lyálpa þeim lil að útvega sér atvinnu og láta sér að öllu leyti ant um þá og allan þeirra hag. Það er auðvitað að annað eins og það sem danska rikið gerir fyrir málleysingjana, koslar mikið fé. Forstöðumenn- irnir fá að launum 4—5000 kr. auk ókeypis bústaðar og annara hlunninda; kennararnir hafa 1200-3200 kr. föstlaun (hœkkandi eftir embœttisaldri), kenslukonurnar 1000—2000 kr. föst laun. Auk þess fá bæði keunarar og kenslukonur ókeyj>is húsnæði og fæði eða borgun fyrir það. Að meðal- tali kostar hver málleysingi 900—1000 kr. á ári, og er þó ekki þar með talin rentan af því fé, sem varið hefir verið til skólabyggingar, en það fé er geysimikið. Þannig kostar t. d. skólinn i Nyborg 100 þús. kr.; undirbúningsskólinn í F'redericia 250 þús. kr. o. s. frv. Má því nærri geta, að dönskum málleysingjakennurum ldýtur að blöskra, þegar þeir heyra, að alt það sem ísland gerir fyrir sína málleysingja, sé að koma þeim fyrir hjá prívatmanni, sem á að annast þá að öllu leyti fyrir 1-eina-krónu á dag í meðgjöf með bverjum nemanda! Eg hefi hér dvalið við málleysingjaskólana dönsku, af því ég hefi séð þá með eigin augum, en auðvitað standa Danir ekki hæi'ra i þessu efni, en aðrar siðaðar þjóðir, Eg Iief

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.