Nýtt kirkjublað - 20.08.1907, Blaðsíða 15
NÝTT KÍRKJUBLAÍ).
Í83
að vakning kom í söfnuðunum, holl, almenn vakning, laus
við allan trúarofsa og ófrelsi; því margir sofa og margir eru
illa vakandi. Áhrif slíkrar sannrar og hollrar frúarvakningar
eru mikil og góð bœði á prestana eða prédikarana, á kristna
menn alment og ])á ekki sízt á hina villuráfandi og andvara-
lausu. Prestarnir þurfi slíkrar vakningar við; en söfnuður
inn ekki síður; vakningin getur komið bœði frá prestunum,
en einnig frá mentuðum, sannkristilega sinnuðum leikmönnum,
og helztu meðulin til að koma slíkum vakningum af stað
eru barnaguðsþjónustur, kristilegur uugmennafélagsskapur,
trúarsamtalsfundir, að nágrannaprestar mes-i stöku sinnum
á víxl hverjir hjá öðrum, og síðast en ekki sízt iðuleg, al-
varleg, trúarörugg bæn til Guðs.
8. Fundurinn símritaði past. emerit. Hjörl. Einarssyni
í Reykjavík bróðurkveðju og heillaósk með þökk fyrir ágæta
starfsemi í þaríir félagsins.
9. Formaður félagsins var endurkosinn féra Zófónías
Halldórsson prófastur, og varaformaður var endurkosinn séra
Hálfdán Guðjónsson. Fundarstaður næsta ár var ákveðinn á
Akureyri, en fundartími ekki fast ákveðinn
Kl. 9'/2 var byrjuð guðsþjónustugjörð í kirkjunni og
voru prestarnir til altaris. Séra Zófónías prédikaði út af
Lúk, XXII., 7., en séra Sigfús framdi altarisþjónustu.
Fleiri mál voru ekki tekin fyrir.
Fundi slitið kl. 1. um nóttina með bróðnrlmga og bróð-
urkveðjum. —
Zófónías Halklórsson, B. Þorstemsson.
íúndarstjóri.
skrifari.
Ipirkjumdlin
eru þegar afgreidd frá efri deild. Nefndiu þar, Eiríkur Briem
torm. Sig. Stefánsson, skrifari og lramsögum. Guttortnur Vigfús-
son, Sigurður Jensson og Þórarinn Jóilssou gjörði alltniklar
breytingar á snmum frumvörpum stjóruarinnar, einkum prestalauna-
frumvarpinu. Sóknartekjur presta afnumdar en upphæð þeirra
greidd úr latidsjóði, vill uefndin bæta landssjóði þau útgjöld tit