Nýtt kirkjublað - 06.02.1908, Side 1
NÝTT KIRKJUBLAÐ
HALFSMÁNAÐARRIT
FYRIE, KRISTINDÓM OG KRISTILEGA MENNING
1908.
Reykjavik, 6. febr.
2. blað
lannsmóiið og mannsviljinn.
Hvað er það sem gerir manninn ólíkan öllum öðruin
skepnum ?
Látið börnin reyna sig á ]iví, að svara spurningunni.
Ekki út úr kverinu, með orðum og hugmyndum sem þau
ekki skilja, en látið þau koma með eitthvað, sem ]>au sjálf
geta séð og þreifað á.
Eitthvað láta börnin það heita, og það er nógu líklegt
að þrent verði fyrir þeim, sem maðurinn hefir, en ekki dýr-
ið. Það eru fötin, eldsnotin og málið.
Það er undur skemtilegt efni að rifja upp fyrir börnunum,
hvernig dýrin hafa allskonar litaskifti og hamaskifti sér til
varnar og þæginda í hita og kulda o. s. frv. — Sjálfur lík-
aminn breytist og þar er búningsbótin og fataskiftin hjá dýr-
unum En hitt verður engu dýri að sníða á sig ytra gerfi
úr aðfengnu efni, og fara í það og úr því eftir vild.
Við erum altaf með eldspýturnar í höndunum, og hugs-
um ekki út í það hvaða dásemdar-undur það hefir verið, er
mannveran í fyrndinni forðum datt ofan á það að kveikja eld.
Þeir íkildu betur til forna, en nú skiljum vér orðin: „Eldur
er beztur með ýta sonum“. Og þessi ímynd lífsins í eldinum!
„Funi kveikist af funa“, og þó er jafnóeytt það sem af er
tekið. Þjóðirnar geymdn helga elda sílifandi um þúsundir ára.
Eimir enda enn af þeim sið i sumum helgivenjum. Og goða-
sagnirnar láta eldinum vera rænt af himni, og guðirnir eru
gramir þeirri miklu framsókn mannsandans.
Tal og tungumál verður flestum fyrst að nel’na af yfirburð-
unum miklu er greina manu frá dýri. Óefað gera menn þá