Nýtt kirkjublað - 30.03.1908, Qupperneq 6
70
NÝTT KIRKTÍTBLAÐ
allra starfsemda vorra. í stuttu máli: kristindómurinn, eins
og hann er alment skilinn (eða öllu heldur kristindómur pré-
dikunarstólanna og guðfræðisskólanna) skýrir ekki lífið.
Afleiðingin er sú, að hinn mikli fjöldi þeirra manna í
heiminum, sem mest hugsa og starfa, eru nú teknir að skella
við honum skolleyrunum.
lustan úr SínaYeldi.
Orður og titlar eiga þar svo sem heima eigi síður en
hér vestur um. Það skilur hver maður, sem eitthvað kann
á kínverska háttu. En það hafa Kínverjar fram yfir oss, að
þeir láta metorða-hækkunina lílca koma niður á dauðum
mönnum.
Konfúsíus spekingur var í heiminn borinn fyrir einum
2500 árum. Hann var stórmetinn eftir að hann var kominn
i gröfina, og smáhækkaði í tigninni. Rétt um það Ieyti sem
tímabil vort hefst, fékk hann hertoganafnbót. Eftir nokkrar
aldir var hann kominn í guða tölu, og að sínu leyti eins og
hér hjá oss eru „kommandörar af fyrsta“ og „öðrum flokki“,
eins eru í Kína æðri guðir og óæðri, og hver veit hvað flokk-
arnir eru margir, og skiljanlega komst Konfúsius ekki hærra
um sinn, en að vera guð á óæðri bekk.
Það vantar ekki skólana í Kína, ósköpin öll af þeim, og
af prófum, alveg fyrirmyndarland í þeim efnum. Og það
var sjálfgefið að Konfúsíus spekingur yrði skólaguðinn. Mynda-
spjald hefir mint á hann í öllum skólum rikisins, og skóla-
sveinar allir áttu eftir settum reglum að veita honum, eða
myndinni af honum, lotningu og dýrkun.
Nú er það alveg búið að vera. Fyrir skemstu kom út
keisarabréf um það, að Konfúsíus væri stórkostlega hækkað-
ur í tignarstiganum, keisarinn gerir hann að guði í „fyrsta
flokki“. Hann stendur nú jafnhátt og guðirnir Himinn og
Jörð. Og þetta verða allir kínverskir þegnar að vita og eftir
þvíað breyta, því að nú megaekki aðrir dýrka Konfúsíus en sjálft
keisarafólkið, eða kanske bara „himinsonurinn11 einn, sjálfur
keisarinn. Guðirnir í „fyrsta llokki“ sinna ekki öðrum mönn-
um.