Nýtt kirkjublað - 15.05.1908, Side 2
114
NÝTT EIRKJTJBLA©
I |)eim sóknum ]>ar sem sðfnuður hefir ekki tekið umsjón
og fjárhald kirkju, er landsstjórninni heimilt að ákveða kirkju-
gjald, miðað við tölu fermdra safnaðarlima ’/i 1910, svo að
nemi jafnmikilli upphæð og öll safnaðargjöld* til kirkjunnar
hafa numið að meðaltali um 10 ár, 1901—1910. Áður skal
þó leitað yfirlýsingár kirkjuforráðanda og sóknarnefndar um
]jað, hvort þessarar breytingar sé óskað.
Húsráðandi leggur fram sóknargjöld til prests og kirkju
fyrir þá sem eru til húsa hjá honum, en hann á hjá þeim
endurgjaldsrétt. Fyrir þá, sem eru á sveitarframfæri getur
húsráðandi krafist endurgjalds úr sveitarsjóði.
Prestar þeir, sem taka laun eftir eldri ákvæðum en lög-
um ,6/n 1907, skulu fá úr prestlaunasjóði uppbót fyrir sókn-
artekjur eftir 10 ára meðaltali, 1901 — 1910, að frádregnum
innheimtulaunum 6°/0.
Aukaverka-frumvarpið á að verða að lögum ^ 1911:
Fyrir hjónavígslu greiðist presti 5 kr., fyrir skírn 2 kr.,
fyrir ferming 6 kr.; líksöngseyrir 3 kr., auk borgunar fyrir
líkræðu ef um er beðið. Prestur fær fylgdarmanu báðar leið-
ir, er hann vitjar sjúkra, en leggur sér sjálfur til hest. Ó-
keypis flutningur á sjó. Borgun til presta og safnaðarfull-
trúa fyrir skoðun kirkjureikninga sé afnumin, og sömuleiðis
borgun til prófasta fyrir kirkjuskoðun.
íhreinn, óhreinní
Og líkþrár maður, er sóttina hefir, — ldæði hans skulu
vera rifin og hár hans flakandi og hann skal hylja kamp
sinn og lirópa: Óhreinn, óhreinn!
Alla þá stund, er hann hefir sóttina, skal hann óhreinn
vera; hann er óhreinn; hann skal búa sér; bústaður hans
skal vera fyrir utan herbúðirnar. (3. Móseb. 13. 45 — 46).--------
Þetta er öflugasta sóttvaruarráðið sem nokkru sinni hefir
verið beitt í heiminum. Með því var holdsveikinni haldið í
skefjum, og þessi orð lýsa betur en langt mál æfikjörum holds-
veikra manna um þúsundir ára. Þeir voru óhreinir, og máttu
ekki koma nálægt nokkrum heilbrigðum manni. Þeir áttu að