Nýtt kirkjublað - 01.12.1908, Side 1
NYTT KlRKJUBLAÐ
HALFSMÁNAÐAKRIT
FYRIR KRISTINDÓM OG KRISTILEGA MENNING
1908.
Reykjavik, 1. desember
Sraftaverk.
23. blað
[Niðurl.]
Fyrra atriðið, sem ég vildi benda á, er sálarlíf manns-
ins. Sáiarlíf mannsins er vafalaust sá hluti tilverunnar,
sem enn má heita ókunnastur, en ])að er jafnframt sá hluti
liennar, sem mest er starfað að rannsóknum á einmitt á
vorum dögum. Og fyrir pað er sízt að synja, að þar hafa í
Ijós verið leiddir margir undarlegir hlutir, sem kynslóðir eldri
tíma heíir naumast dreymt um; og þar hafa verið gjörðar upp-
götvanir, sem eru oft og einatt margfalt undursamlegri en
þær uppgötvanir innan véhanda hlutaheimsins, sem vér í seinni
tíð höfum heyrt svo mikið um talað, en fyrir 100 árum hefðu
taldar verið með öllu ómögulegar. Vér dáumst að því, og
það með réttu, að menn skuli gela talast við yfir margra
rnílna svæði eftir málmþræði — og nú jafnvel þráðarlaust.
En hvað er það þó í samanhurði við hitt: ef sannað yrði, að
maður geti án allra ytri tilfæringa Iiaft áhrif á huga annars
manns, er dvelur í margra mílna fjarlægð, og birt honum hugs-
anir sínar og óskir? Þessi merkilega nýung er að
vísu ekki fullkomlega sönnuð enn þá, en margt virðist á það
benda, að ekki eigi það langt í land, að fullar og órækar
sannanir fáist. — Vér heyrum utan úr heimi fregnir um ó-
vanalegar lækningar — lækningar fyrir bæn eina og handayfir-
leggingu, þar sem ekki er annað heimtað af sjúklingnum en
að hann trúi, að sér verði hjálpað. Vitanlega er ekki öllu
trúandi sem fréttist um slíkar lækningar, en að slikar lækn-
ingar hafi átt sér stað, því verður ekki lengur neitað, — til
þess eru sannanirnar of sterkar. En hvílíku ljósi er með þessu
brugðið upp yfir ýmsar af kraftaverkasögum nýjá testament-